Verkefni (skilahólf)
Verkefni í Canvas er það tól sem er mest notað fyrir skil nemenda. Algengast er að nemendur skili inn í verkefnið einhvers konar skrá t.d. DOCX, PDF, eða MP4 vídeóskrá. Tólið styður einnig hópverkefni, jafningjamat, matskvarða og verkefni án rafrænna skila. Í verkefni hefur kennari úrlausnir nemenda á einum stað í SpeedGrader, þar sem gefin er einkunn og endurgjöf. Hægt er að skrifa endurgjöf beint inn í skjal nemanda, taka upp endurgjöf í hljóðskrá/vídeó (sem mörgum finnst fljótlegra) og nota matskvarða.
Með því að hafa verkefni uppsett og birt nemendum í upphafi misseris birtast skiladagar í námskeiðsdagatali og nemendur fá betri yfirsýn þá vinnu sem námskeið krefst. Nemendur fá þá yfirsýn yfir skil í öllum sínum námskeiðum, álagstímabil verða skýr, sem gefur nemendum tækifæri til að skipuleggja nám sitt fram í tímann.
Verkefni eru einnig sett upp vegna munnlegra prófa, kynninga eða verklegra æfinga þegar ekki á að skila í Canvas til að skrá skiladag, endurgjöf og einkunn.
Um gerð verkefna og verkefnislýsingu
Markmið verkefnis
Það er mikilvægt að nemendur sjái tilgang með verkefni. Hvernig gagnast það nemendum að vinna verkefnið? Hvaða hæfni munu þau þjálfa? Hvaða hæfniviðmiði námskeiðs tengist verkefnið? Hvers vegna ætti nemandi að eyða tíma í að rannsaka og skrifa í stað þess að fá t.d. tilbúið svar frá Google eða úr GPT-spjalli, burtséð frá akademískum heilindum?
Verkefnið sjálft
Hvað eiga nemendur að gera og hvernig? Eru ákveðin skref? Eru algeng mistök sem þau þurfa að forðast? Þarf að skila verkefninu á ákveðnu formi? Hafa nemendur val um efni verkefnis?
Námsmatið
Hvernig vita nemendur að þau hafa gert allt sem á að gera áður en þau skila úrlausn? Kemur fram út frá hvaða viðmiðum verkefnið verður metið? Fylgir matskvarði eða gátlisti yfir atriði sem verða metin? Hvert er vægi verkefnisins í lokaeinkunn?
Áherslur kennarans s.s. um vönduð vinnubrögð, framsetningu og frágang, markmið, rökfærslu, fræðilegan undirbúning, heimildanotkun eða málfar. Leiðbeiningar um hvernig á að nálgast verkefnið, upplýsingar um nauðsynlegt námsefni, rannsóknir eða fylgigögn.
Spurningar nemenda
Hvetja nemendur til að spyrja ef eitthvað er óljóst. Það getur komið sér vel að setja upp umræðu í tengslum við verkefnið í þeim tilgangi að svara spurningum nemenda á meðan á verkefnisvinnunni stendur.
Umfang úrlausnar og snið
Á hvaða formi eiga skilin að vera s.s. myndband eða pdf? Má nemandi velja úr mismunandi gerðum skila?
Annað
Aðrar upplýsingar eftir atvikum, reglur varðandi sein skil eða vísað með tengli í reglur námskeiðs í kennsluáætlun, um samvinnu nemenda við úrlausn verkefnisins, einstaklingsverkefni, hópverkefni.
Ritskimun
Verður notast við Turnitin ritskimun í verkefninu? Upplýsingar um hvað felst í ritskimuninni, um hvernig nemandi notar Turnitin eða til hvers verður sérstaklega horft. Turnitin-leiðbeiningar nemenda.
Gervigreind
Upplýsingar um notkun gervigreindartóla í verkefnavinnu, hvort og að hvaða marki leyfilegt er að nota gervigreind og hvernig skuli vísað til hennar eða upplýsa um notkun hennar.
Uppsetning og skipulag
Mótaðu verkefnislýsinguna með fyrirsögnum, listum eða inndrætti þar sem það á við til auka skýrleika og svo að textinn sé notendavænn fyrir þá sem nota talgervla. Hafðu orðalag skýrt og hnitmiðað.
Skil í Canvas
Kennari gæti einnig látið fylgja tengil í Canvas leiðbeiningar nemenda, sérstaklega ef nemendur eru að skila í fyrsta skipti: Nemandi skilar verkefni í Canvas.
Annað sem tengist verkefnum
- Að gefa einkunn og endurgjöf (í SpeedGrader).
- Leiðbeiningar um hvernig vægi verkefna er sett upp.
- Leiðbeiningar um matskvarða.
- Vegna hópverkefna: Um hvernig nemendum er skipt í hópa og vandamál tengd hópverkefnum og ráð til að fyrirbyggja.
- Jafningjamat, uppsetning og yfirferð.
- Kennari skilar verkefni fyrir hönd nemanda.
- Sjúkra- og endurtökupróf
- Skiladagar allra verkefna í námskeiði uppfærðar á einum stað:
How do I bulk update due dates and availability dates as an instructor? - Canvas verkefni sem tekur við einkunnum úr Inspera.
