Heim > Kennarar > Einkunnir og endurgjöf > Einkunn og endurgjöf

Einkunn og endurgjöf í SpeedGrader

SpeedGrader í Canvas er það verkfæri sem notað er til að gefa nemendum endurgjöf og einkunn. Kennari getur notað SpeedGrader í verkefnum, umræðum og prófum. Þegar um hópverkefni er að ræða koma heiti hópa fram í SpeedGrader í stað nafna nemenda (ef verkefnið var rétt upp sett).

Í vídeóinu er farið yfir umhverfið í SpeedGrader og helstu atriði.

  • Einkunnir í einkunnabók uppfærast um leið og þeim er breytt í SpeedGrader og öfugt.
  • Kennari þarf að birta einkunnir til að þær verði aðgengilegar nemendum.
  • Endurgjöf kennara hvort sem er athugasemdir í skjal nemanda, myndband, viðhengi eða rituð endurgjöf í hliðarpanel SpeedGrader er falin þar til einkunnir verkefnis hafa verið birtar.

Hvernig eru einkunnir birtar?

  1. Farðu í einkunnabók, Einkunnir í valmynd námskeiðs.
  2. Finndu dálkinn fyrir verkefnið og smelltu á þrípunktinn efst á dálkinum (hann sést þegar músað er yfir).

    birta einkunnir

  3. Smelltu á Birta einkunnir og samþykktu í panelnum hægra megin.

Þessa aðgerð er einnig hægt að framkvæma í SpeedGrader, þá er smellt á augað í efra vinstra horni.

Einkunnagjöf í hópverkefnum

Einkunn og endurgjöf sem gefin er einum meðlimi hóps kemur fram hjá öllum nemendum sama hóps.

Til að gefa nemanda hóps aðra einkunn en hópfélögum þarf að merkja við „Skrá einkunnir á hvern nemanda sérstaklega“ í uppsetningu verkefnisins. Á meðan sú stilling er virk fara einkunnir einungis á einstaka nemendur. Hægt er að breyta stillingunni fram og til baka eftir hentugleika.

Gott vinnulag: Í flestum tilvikum þar sem nemendur hóps eiga almennt að fá sömu einkunn er best að byrja á að gefa hverjum hópi einkunn, en virkja þar á eftir „Skrá einkunnir á hvern nemanda sérstaklega“ til að skrá einkunn á einstaka nemendur (hópeinkunnin hjá öðrum í hópnum breytist ekki við það). 

Í hópverkefnum er áríðandi að allir nemendur séu settir í hóp, einnig nemendur sem mega skila einir, ef einhverjir eru og að samsetningu hóps/hópa sé ekki breytt eftir að skil hefjast. Ef sjálfskráning í hópa er leyfð er gott að slökkva á henni þegar skil eiga að hefjast.
Kynntu þér vel Unnið með hópa í námskeiði og hvernig má fyrirbyggja vandamál varðandi hópa í Canvas.

Annað sem tengist