Líklega er þetta eitt af algengustu vandamálum sem nemendur lenda í. Algengt er að einn nemandi kvarti þó að enginn þeirra geti í raun opnað skjalið. Til að sannreyna að nemendur geti opnað efni eða ekki skaltu gera eftirfarandi.
- Opnaðu námskeiðið og farðu í nemandasýn, þ.e. smelltu á skoða sem nemandi í efra hægra horni. Fjólubleikur rammi birtist utan um síðuna.
- Finndu hlekkinn á skjalið/efnið og smelltu á hann.
- Ef skjalið opnast eðlilega í nemandasýn liggur vandamálið líklega hjá nemandanum. Hægt er að benda nemanda á þjónustuborð.
- Ef skjalið sést ekki í nemandasýn þarf að birta það nemendum. Farðu úr nemandasýn (neðst til hægri) og birtu skjalið með því að smella á aðgengistáknið hægra megin við það og veldu birta.

Ef hlekkur á skjalið var settur á síðu getur nemandi séð séð hlekkinn en þegar smellt er á hann koma upplýsingar um að skjalið sé læst, sem þýðir að það þarf að breyta stillingum skjalsins í skráarsafni námskeiðs.
Farðu í skráarsafnið (skrár), finndu skjalið og gerðu það aðgengilegt nemendum þar.Farðu í nemandasýn og sannreyndu að nemendur geti opnað skjalið.
Leitaðu eftir aðstoð ef ekki reynist unnt að finna út úr vandanum.
Þetta gerist frekar oft og er yfirleitt vegna þess að kennari gaf tilteknum nemanda/nemendum lengri skilafrest en fór ekki rétt að.
Í neðsta reitnum í uppsetningu verkefnis er verkefninu yfirleitt úthlutað til allra nemenda. Mistökin felast í að setja nöfn t.d. tveggja nemenda sem eiga að fá lengri skilafrest í úthluta til línuna en eyða um leið allir. Afleiðingin er sú að verkefninu er ekki lengur úthlutað til allra hinna nemendanna. Þeir sjá ekki lengur verkefnið og skil þeirra hverfa ásamt einkunnum og endurgjöf ef búið var meta skilin. Þegar á að gefa nemendum annan skilafrest en öðrum nemendum þarf alltaf að búa til nýjan úthlutunar- og tímaramma fyrir þá.
Lausnin
- Opna verkefnið og fara í breyta.
- Skrolla niður síðuna og smella á +bæta við, neðst á síðunni. Nýr úthlutunar- og tímarammi bætist við.
- Setja allir í úthluta til línuna. Canvas breytir því í allir aðrir.
- Stilla upprunalegan tíma verkefnisins.
- Vista.
Við þessa aðgerð birtast aftur verkefnaskil nemenda, og einkunnir og endurgjöf ef búið var að meta.
Hægt er að búa til eins marga úthlutunar- og tímaramma í verkefni og þörf krefur fyrir nemendur með ólíka skilafresti. Sjá nánar gefa nemanda lengri skilafrest í uppsetningu verkefnis.
Fleiri en ein ástæða geta valdið því að lokaeinkunn reiknist ekki rétt. Þær verða ekki raktar hér en sú algengasta stafar af misskilningi á tilgangi punkta í verkefni.
- Punktar verkefnis standa fyrir hámarkseinkunn sem oft er 10. Það mælir þó ekkert á móti því tæknilega að gefa verkefnum annan punktafjölda svo framarlega sem þess er gætt að gefa einkunn á réttum skala.
- Verkefni með 20 punkta þarf að gefa einkunnir á skalanum 0-20 þar sem 20 er hámarkseinkunn.
- Verkefni án punkta getur Canvas ekki reiknað með í lokaeinkunn.
- Ef verkefni á ekki að gilda til lokaeinkunnar má það vel hafa punkta, enda er nemendum oft gefin einkunn fyrir slík verkefni, en það þarf að merkja við ekki reikna þetta verkefni með í lokaeinkunn í uppsetningu verkefnisins.
- Verkefni sem nemendur fá lokið/ólokið fyrir þarf einnig að hafa punkta ef verkefnið á að reiknast með í lokaeinkunn. Lokið gefur nemanda fullan punktafjölda en ólokið 0.
Til að stilla vægi verkefnis í lokaeinkunn þarf að setja verkefni í verkefnaflokk og stilla vægið fyrir verkefnaflokkinn. Ef fleiri en eitt verkefni eru höfð í sama verkefnaflokki og verkefnin eiga öll að hafa jafnt vægi er áríðandi að þau hafi sama punktafjölda.
Punktar hafa áhrif á vægi þegar fleiri en eitt verkefni er haft í sama verkefnaflokki.
Dæmi: Í sama verkefnaflokki eru tvö verkefni annað 10 punkta hitt 20 punkta. Einkunnin fyrir 20 punkta verkefnið hefur þá tvöfalt vægi á við 10 punkta verkefnið í útreikningi einkunnar fyrir verkefnaflokkinn.
Sjá nánar leiðbeiningar um vægi verkefna og fjölda punkta og útreikning.
Algeng ástæða þess að nemandi fær ekki aðgang að upptöku er að hún er í rangri möppu í Panopto, t.d. í möppu eldra námskeiðs, eða að tengt hafi verið beint í upptökuna í stað þess að setja hana inn með Panopto-tólinu í Canvas. Upptökur í Panopto flytjast ekki á milli námskeiða þegar önnur námskeiðsgögn er flutt.
Lausn: Settu upptökuna í Panopto-möppu námskeiðsins eða settu hana inn í Canvas með Panopto-tólinu.
Sjá nánar:
Ef einkunnum fyrir verkefni var eytt eða breytt fyrir mistök er hægt að skoða einkunnabókarferil. Boðið er upp á að nota síur til að skoða t.d. eingöngu breytingar sem hafa orðið á tilteknu verkefni, hjá nemanda eða sem tiltekinn matsaðili breytti. Einkunnabókarferill er aðgengilegur í valmynd í efra vinstra horni einkunnabókar.
Annar mögleiki til að endurheimta fyrri einkunnir verkefnis er að nota prófunarútgáfu (test) Canvas eða beta útgáfu. Í því tilviki er best að leita til Canvas teymis Kennslumiðstöðvar (kennslumidstod@hi.is). Ef einkunnir eru enn til staðar þar er hægt að fá niðurhal (CSV skrá) úr einkunnabókinni eða skjámynd.
Prófunarútgáfan (test) er uppfærð mánaðarlega út frá lifandi útgáfu Canvas en beta útgáfan vikulega. Það fer eftir því hvenær upprunalegu einkunnirnar voru skráðar/eytt/breytt og hvort búið er að uppfæra þessar útgáfur síðan.
Prófunarútgáfan og beta hafa lægri uppitíma en lifandi útgáfa og eru því ekki alltaf aðgengilegar. Sjá nánar um þrjár uppsetningar Canvas í leiðbeiningum starfsfólks.
Ef verkefni hefur óvart verið eytt úr Canvas er oft hægt að endurheimta það með undelete-slóðinni í námskeiðinu.
Lausn
- Opnaðu námskeiðið í Canvas.
- Farðu á forsíðu námskeiðsins, heim.
- Smelltu í slóðina í vafranum.
- Bættu /undelete aftast við slóð námskeiðsins.
Dæmi:https://haskoliislands.instructure.com/courses/12345/undelete - Ýttu á Enter.
- Þá opnast síða með efni sem nýlega hefur verið eytt úr námskeiðinu.
- Finndu verkefnið í listanum og smelltu á Restore.
- Farðu aftur í námskeiðið og athugaðu hvort verkefnið hafi endurheimst rétt.
Athugaðu
Verkefnið kemur inn undir verkefni í valmyndinni. Ef verkefnið var áður í einingu/viku þarf að setja það aftur þar inn.
Með þessari leið er hægt að endurheimta:
- hefðbundin Canvas verkefni, matskvarðar endurheimtast ekki með verkefni
- umræður, síður og sígild próf.
Eingöngu er hægt að endurheimta atriði sem nýlega hefur verið eytt.
Ekki er hægt að endurheimta próf úr nýja prófakerfinu eða annað sem búið er til með viðbótum s.s. með FeedbackFruits.
Algengar spurningar
- Farðu í námskeið í Canvas valmyndinni og þar í öll námskeið.

- Skrollaðu niður að fyrri innritunum. Þar eru námskeið sem er lokið.
- Smelltu á námskeið til að opna.
Athugið: Ekki er mögulegt að vinna í eða breyta námskeiði sem er lokið. Ef það er nauðsynlegt þarf að óska eftir að láta framlengja námskeiðið tímabundið með því að senda póst á hjalp@hi.is.
Sjá leiðbeiningar um að gefa skoðunaraðgang.
Vinsamlegast hafðu samband við viðkomandi deild eða fræðasvið. Starfsfólk í skrifstofum deilda/fræðasviða sér um að skrá kennara á námskeið.
Notendur Canvas koma úr Uglu og það þarf að vera innskráður í Uglu til að geta opnað Canvas, þ.a.l. er eingöngu hægt að veita aðilum með HI notandanafn aðgang að námskeiði.
Námskeiðsvefur í Canvas verður til fljótlega eftir að námskeið er stofnað í Uglu. Ef námskeið er sýnilegt í Uglu en ekki í Canvas er hægt að smella á námskeiðið í Uglu og á stofna námskeiðsvef í Canvas.
Ef námskeið eiga að hafa sameiginlegan námskeiðsvef í Canvas þarf senda beiðni um sameiningu námskeiðanna.
Sjá nánar: Tvö eða fleiri námskeið kennd saman.
Þegar námskeið hafa verið sameinuð í Canvas þarf að skrá lokaeinkunnir fyrir hvort eða hvert námskeið fyrir sig í Uglu. Sjá nánar um flutning lokaeinkunnar í Uglu og sameinuð námskeið.



