Vægi verkefna og fjöldi punkta
Til að tryggja að lokaeinkunn reiknist rétt þarf hvert matsatriði að vera í verkefnaflokki. Vægi er stillt fyrir verkefnaflokkinn, ekki fyrir stakt verkefni. Verkefnaflokkar og vægi þeirra eru sett upp undir verkefnum í valmynd námskeiðs. Breytingar sem þar eru gerðar birtast jafnóðum í einkunnabókinni.
Punktar verkefnis tákna ekki vægi heldur hámarkseinkunn fyrir verkefnið, sem oftast er 10. Ef fleiri en eitt verkefni eru í sama verkefnaflokki hefur punktafjöldi hvers verkefnis áhrif á innbyrðis vægi þeirra innan flokksins. Þess vegna þurfa verkefni í sama flokki að hafa sama punktafjölda ef þeim er ætlað að hafa jafnt vægi.
Námsmat af gerðinni lokið/ólokið byggist einnig á punktum ef það á að telja með í lokaeinkunn. Lokið telst þá sem full einkunn út frá punktafjölda verkefnisins en ólokið sem 0.
Vægi verkefna sett upp
Byrjaðu á að virkja vægi.
- Farðu í Verkefni í valmynd námskeiðs (vinstra megin).
- Smelltu á þrípunktinn í efra hægra horni (sjá mynd) og veldu Vægi verkefnaflokka.

- Merktu við Vegin lokaeinkunn byggð á verkefnahópum. Í glugganum er einnig hægt að skrá vægi fyrir þá verkefnahópa sem þegar hafa verið stofnaðir.

- Vistaðu.
Verkefnahópar settir upp
- Smelltu á +Hópur í efra hægra horni (hér er verið að stofna hóp verkefna, ekki nemenda).

- Gefið verkefnahópnum heiti, skráið vægi hópsins og vistið.

Um leið og verkefnahópur er stofnaður verður til dálkur fyrir hann í einkunnabók námskeiðs. Nemendur fá bæði einkunn fyrir verkefni og fyrir verkefnahóp. Einkunn verkefnahóps er sýnd sem hlutfall.
Þegar verkefni er stofnað er verkefnið ávallt sett í tiltekinn verkefnahóp um leið. Kennari getur einnig stofnað nýjan verkefnahóp um leið og hann stofnar verkefni. Það er gert með því að velja Nýr hópur þar sem stendur verkefnahópur í uppsetningu verkefnisins. Það sama á við um próf og umræður sem gefin er einkunn fyrir.

Vægi stillt fyrir stakt verkefni
Til að stilla vægi fyrir stakt verkefni þarf að setja það í sér verkefnahóp og gefa verkefnahópnum vægi.

Verkefni færð á milli hópa
Einfalt er að draga verkefni á milli hópa og/eða breyta röð verkefnahópanna með því að nota færa táknið.

Sleppa einni eða fleiri lægstu einkunnum nemanda
Verkefnahópur býður upp á nokkra möguleika í stillingum t.d. að sleppa lægstu einkunn nemanda í verkefnum innan verkefnahópsins og að tiltaka verkefni sem ekki má sleppa einkunn fyrir. Stillingarnar verða aðgengilegar eftir að búið er að setja verkefni í verkefnahópinn.
Mælt er með að setja sjálfvalda einkunn sem 0 hjá nemendum fyrir þau verkefni þar sem sleppa á lægstu einkunn (gert í einkunnabókinni). Þetta má gera strax eftir að verkefnin eru uppsett og útskýra síðan fyrir nemendum. Þegar nemendur fá einkunnir koma þær sjálfkrafa inn í staðin fyrir núllin en þeir nemendur sem ekki skila halda áfram að vera með núll fyrir verkefni.
Ástæða
Þegar nemandi hefur fengið einkunn fyrir tvö verkefni fær hann skilaboð um að lægri einkunnin gildi ekki. Canvas velur altaf lægstu/lægri einkunn af þeim einkunnum sem þegar eru komnar og sleppir henni í útreikningi fyrir verkefnahópinn.
Dæmi: Af fjórum verkefnum má sleppa einni lægstu einkunn nemanda í útreikningi. Nemandi hefur fengið einkunnir fyrir þrjú verkefni: 8, 8,5, og 9 en skilaði ekki fjórða verkefninu. Í einkunnabókinni er ekki reiknað út úr tómum reitum, þ.a.l. myndi Canvas sleppa lægstu einkunninni í útreikningi heildareinkunnar fyrir verkefnahópinn sem er 8 í þessu tilviki.

Smella þarf á þrípunktinn fyrir verkefnahópinn og velja Breyta. Í glugganum er t.d. hægt að tiltaka eina eða fleiri lægstu einkunnir nemenda sem skulu falla niður í verkefnahópnum.

Lokið/Ólokið
Lokið /Ólokið gildir sem 10 (eða hæsta mögulega einkunn) fyrir lokið og 0 fyrir ólokið í útreikningum einkunnabókar. Nauðsynlegt er að gefa slíku verkefni punkta eigi það að hafa vægi í lokaeinkunn námskeiðs. Einu gildir hvort verkefninu er gefinn 1 punktur eða 10 (sé það í sér verkefnahópi). Einkunnabókin þarf punkta til að geta reiknað verkefnið inn í lokaeinkunn. Ef lokið/ólokið verkefni er haft með fleiri verkefnum í sama verkefnahópi þarf að passa að öll verkefni innan hópsins hafi sama punktafjölda eigi þau að hafa sama vægi innbyrðis.
Æfingapróf eða verkefni sem eiga ekki að hafa vægi í lokaeinkunn
Ef gefin er einkunn fyrir verkefni eða annað í námskeiði sem ekki á að hafa vægi í lokaeinkunn þarf annað hvort að setja það í verkefnahóp sem hefur 0 í vægi eða merkja við Ekki reikna þetta verkefni með í lokaeinunn í uppsetningu verkefnisins.
- Vægi verkefna sett upp
- Dæmi um útreikning
Byrjaðu á að virkja vægi.
- Farðu í Verkefni í valmynd námskeiðs (vinstra megin).
- Smelltu á þrípunktinn í efra hægra horni (sjá mynd) og veldu Vægi verkefnahópa.

- Merktu við Vegin lokaeinkunn byggð á verkefnahópum. Í glugganum er einnig hægt að skrá vægi fyrir þá verkefnahópa sem þegar hafa verið stofnaðir.

- Vistaðu.
Verkefnahópar settir upp
- Smelltu á +Hópur í efra hægra horni (hér er verið að stofna hóp verkefna, ekki nemenda).

- Gefið verkefnahópnum heiti, skráið vægi hópsins og vistið.

Um leið og verkefnahópur er stofnaður verður til dálkur fyrir hann í einkunnabók námskeiðs. Nemendur fá bæði einkunn fyrir verkefni og fyrir verkefnahóp. Einkunn verkefnahóps er sýnd sem hlutfall.
Þegar verkefni er stofnað er verkefnið ávallt sett í tiltekinn verkefnahóp um leið. Kennari getur einnig stofnað nýjan verkefnahóp um leið og hann stofnar verkefni. Það er gert með því að velja Nýr hópur þar sem stendur verkefnahópur í uppsetningu verkefnisins. Það sama á við um próf og umræður sem gefin er einkunn fyrir.

Vægi stillt fyrir stakt verkefni
Til að stilla vægi fyrir stakt verkefni þarf að setja það í sér verkefnahóp og gefa verkefnahópnum vægi.

Verkefni færð á milli hópa
Einfalt er að draga verkefni á milli hópa og/eða breyta röð verkefnahópanna með því að nota færa táknið.

Sleppa einni eða fleiri lægstu einkunnum nemanda
Verkefnahópur býður upp á nokkra möguleika í stillingum t.d. að sleppa lægstu einkunn nemanda í verkefnum innan verkefnahópsins og að tiltaka verkefni sem ekki má sleppa einkunn fyrir. Stillingarnar verða aðgengilegar eftir að búið er að setja verkefni í verkefnahópinn.
Þegar nemandi hefur fengið einkunn fyrir tvö verkefni fær hann skilaboð um að lægri einkunnin gildi ekki. Canvas velur altaf lægstu/lægri einkunn af þeim einkunnum sem þegar eru komnar og sleppir henni í útreikningi fyrir verkefnahópinn. Sjá einnig dæmið fyrir neðan.
Mælt er með að setja sjálfvalda einkunn sem 0 hjá nemendum fyrir þau verkefni þar sem sleppa á lægstu einkunn. Þetta má gera strax eftir að verkefnin eru uppsett og útskýra síðan fyrir nemendum. Þegar nemendur fá einkunnir koma þær sjálfkrafa inn í staðin fyrir núllin en þeir nemendur sem ekki skila halda áfram að vera með núll fyrir verkefni.
Dæmi um hvernig virkar: Af fjórum verkefnum má sleppa einni lægstu einkunn nemanda í útreikningi. Nemandi hefur fengið einkunnir fyrir þrjú verkefni: 8, 8,5, og 9 en skilaði ekki fjórða verkefninu. Í einkunnabókinni er ekki reiknað út úr tómum reitum, þ.a.l. myndi Canvas sleppa lægstu einkunninni í útreikningi heildareinkunnar fyrir verkefnahópinn sem er 8 í þessu tilviki.

Smella þarf á þrípunktinn fyrir verkefnahópinn og velja Breyta. Í glugganum er t.d. hægt að tiltaka eina eða fleiri lægstu einkunnir nemenda sem skulu falla niður í verkefnahópnum.

Lokið/Ólokið
Lokið /Ólokið gildir sem 10 (eða hæsta mögulega einkunn) fyrir lokið og 0 fyrir ólokið í útreikningum einkunnabókar. Nauðsynlegt er að gefa slíku verkefni punkta eigi það að hafa vægi í lokaeinkunn námskeiðs. Einu gildir hvort verkefninu er gefinn 1 punktur eða 10 (sé það í sér verkefnahópi). Einkunnabókin þarf punkta til að geta reiknað verkefnið inn í lokaeinkunn. Ef lokið/ólokið verkefni er haft með fleiri verkefnum í sama verkefnahópi þarf að passa að öll verkefni innan hópsins hafi sama punktafjölda eigi þau að hafa sama vægi innbyrðis.
Æfingapróf eða verkefni sem eiga ekki að hafa vægi í lokaeinkunn
Ef gefin er einkunn fyrir verkefni eða annað í námskeiði sem ekki á að hafa vægi í lokaeinkunn þarf annað hvort að setja það í verkefnahóp sem hefur 0 í vægi eða merkja við Ekki reikna þetta verkefni með í lokaeinunn í uppsetningu verkefnisins.
Vægi verkefnahóps og fjöldi punkta fyrir verkefni
Ef fleiri en eitt verkefni er í sama verkefnahópi ræður punktaafjöldi verkefnanna vægi þeirra innbyrðis. Nemandinn fær ávallt einkunn bæði fyrir stök verkefni og einkunn fyrir verkefnahópinn. Fyrir hvern verkefnahóp er einkunn nemanda/prósentugildið reiknuð með því að deila mögulegum punktafjölda sem hægt er að fá fyrir verkefni hópsins í þann punktaafjölda sem nemandi hlýtur fyrir verkefnin.
DÆMI:
Einn verkefnahópur inniheldur þrjú verkefni sem samtals geta gefið nemanda 25 punkta. Tiltekinn nemandi fær samtals 15 punkta af 25 eða 60% fyrir verkefnahópinn. Prósentugildi nemandans er margfaldað með vægi verkefnahópsins. Útkoman fyrir alla verkefnahópana er svo lögð saman til að fá út lokaeinkunn nemandans.
Sem dæmi eru verkefni námskeiðs sett upp í þrjá verkefnahópa (A, B og C) sem hafa vægið 20%, 50% og 30%. Útreikningur lokaeinkunnar nemanda yrði þá (prósentugildi A * vægi A) + (prósentugildi B * vægi B) + (prósentugildi C * vægi C) = lokaeinkunn í prósentum. Ef nemandi fær 75% fyrir verkefnahóp A, 98% fyrir verkefnahóp B og 87% fyrir verkefnahóp C, væri útreikningurinn eftirfarandi: (0,75 * 0,20) + (0,98 * 0,50) + (0,87 * 0,30) = 0,901, eða 90.1%.
Algengast er að verkefni sé 10 punktar sem merkir að einkunn nemanda verður á bilinu 0-10 (með aukastöfum) og að einkunnin sé sýnd sem punktar (sýna einkunn sem) sem þýðir einfaldlega að nemandinn sér einkunnina sína einnig á skalanum 0-10. Verkefnum er þó hægt að gefa annan punktafjölda ef það hentar betur t.d. að láta punktafjölda endurspegla fjölda atriða í verkefni. Einkunnir verkefna er síðan hægt að sýna sem punkta, hlutfall eða nota tiltekinn einkunnaskala til að sýna einkunn t.d. Lokið/Ólokið. Athugið að á bak við skala eru ávallt tölur þar sem kerfið þarf að nota tölur til að reikna út heildareinkunnir verkefnahópa og lokaeinkunn. Ef verkefni hefur 10 punkta og einkunn er sýnd sem Lokið/Ólokið fær nemandi raunverulega 0 (ólokið) eða 10 (lokið). Lokaeinkunn birtist bæði sem hlutfall og sem einkunn á skalanum 0-10 í heilum og hálfum.
Útreikningur