Heim > Kennarar > Einkunnir og endurgjöf > Vægi verkefna og fjöldi punkta > Hvers vegna setja upp námsmat í upphafi misseris?
Hvers vegna setja upp námsmat í upphafi misseris?
- Vegna nemenda
- Vegna kennara
- Það gefur skýrari heildarmynd af námskeiði sjá verkefni og próf á námskeiðsvefnum.
- Nemandinn fær betri yfirsýn yfir þá vinnu sem námskeið krefst og getur skipulagt vinnu sína og frítíma fram í tímann. Þetta styður við vel skipulagt nám.
- Þegar verkefni og próf eru birt á námskeiðsvef koma skiladagar sjálfvirkt fram í dagatali námskeiðs. Nemandi getur skoðað öll sín námskeiðsdagatöl saman í eigin Canvas dagatali og séð hvenær álagspunktar verða á misserinu.
- Nemandinn sér hvað í námsmatinu er mikilvægast (út frá vægi).
- Uppsett verkefni og vægi koma sjálfvirkt fram í kennsluáætlun námskeiðs í Canvas. Til að stuðla að bættu samræmi á milli námskeiða væri best ef svo væri í kennsluáætlun allra námskeiða nemanda frá upphafi misseris.
- Þegar verkefni eru tilbúin í upphafi misseris sér nemandinn strax hvernig umhverfi námskeiðsvefs er skipulagt og það er ljóst hvar á að skila verkefnum.
- Þegar vandlega er staðið að uppsetningu verkefna og vægis í upphafi minnka líkur á að í lok misseris þurfi kennari að breyta uppsetningu verkefna, punktum eða vægi (eftir einkunnagjöf), sem getur í sumum tilfellum kostað kennarann ómælda vinnu aukalega s.s. að skrá einkunnir upp á nýtt. Í lok misseris er einnig mesti álagstíminn hjá stoðþjónustunni, því gæti kennari þurft að bíða eftir aðstoð einmitt þegar síðustu forvöð eru að skila lokaeinkunnum.
- Ef verkefni eða annað vegna námsmats er sett upp á réttan hátt frá upphafi, koma síður upp vandamál þar sem kennari þarf að svara tölvupóstum eða leita til stoðþjónustu þegar kemur að skilum.
- Þegar það er skýrt frá upphafi hvenær á að skila verkefnum, og hvaða viðmið gilda, minnka líkur á seinum skilum.
- Ef verkefni og vægi er uppsett og tilbúið frá byrjun námskeiðs er einfaldara hjá kennara að leita til nemenda varðandi endurgjöf um námskeiðsvefinn og námsmatið, í því skyni að þróa vefinn og gera enn betri eða gera námmatið sem dæmi fjölbreyttara.
Sú vinna sem lögð er í námskeiðsvefinn nýtist kennara næst þegar námskeið er haldið, þar sem hægt er að afrita efni og uppsetningu.
