Í Canvas eru tvö tól til að setja upp próf: sígild próf og ný próf. Svolítill munur er á viðmóti prófs eftir því hvort tólið var notað þegar prófið var sett upp. Einnig eru próf mismunandi eftir því hvaða stillingar kennari velur t.d. hvort allar spurningar skuli birtast á einni síðu eða ein spurning í einu, og í sumum tilvikum getur nemandi yfirgefið prófið og haldið áfram síðar.
Sumir eiginleikar eru ólíkir í sígildum prófum og nýjum prófum, svo það getur verið gagnlegt að skoða bæði myndböndin hér fyrir neðan og/eða tengdar leiðbeiningar.
Athugið: Canvas bendir á að það geti valdið vandræðum að hafa marga flipa opna í vafranum á meðan próf er tekið.
Ef prófið þitt er í Inspera, skaltu skoða Inspera leiðbeiningar fyrir nemendur.
Sjá einnig ráð varðandi próftöku í Canvas neðar á síðunni.
Próftaka í Canvas
Áður en þú opnar prófið skaltu ganga úr skugga um að tölva, vafri og netsamband séu í lagi.
Notaðu uppfærðan vafra sem Canvas styður, t.d. Chrome, Firefox, Edge eða Safari. Athugaðu að cookies og JavaScript séu virk.
Áður en þú byrjar
- Vertu á stað með stöðugt netsamband. Netsamband með snúru er öruggara en Wi-Fi.
- Lokaðu öðrum flipum, gluggum og forritum sem þú þarft ekki að nota.
- Ekki streyma myndskeiðum, hlaða niður stórum skrám eða vera með annað í gangi sem getur haft áhrif á netsambandið.
- Opnaðu prófið aðeins í einu tæki og í einum vafraglugga.
Ekki opna sama próf í fleiri en einni tölvu eða bæði í tölvu og Canvas-appinu. Það getur valdið vandamálum með vistun svara. Til dæmis getur komið fyrir að svör sem skrifuð voru í einu tæki skili sér ekki ef prófinu er lokið í öðru tæki. Þetta er sérstaklega mikilvægt í ritgerðaspurningum og öðrum spurningum þar sem skrifuð eru lengri svör.
Á meðan próf er tekið
Ef prófið er tímastillt birtir Canvas prófklukku. Tíminn heldur áfram að líða þó þú farir út af prófsíðunni.
Svaraðu spurningunum vandlega og farðu yfir svörin áður en þú skilar prófinu. Ekki smella á skila eða leggja fram fyrr en þú hefur lokið prófinu.
Canvas varar við ef spurningum er enn ósvarað í prófinu þegar reynt er að ljúka próftöku. Þú getur þá farið aftur í prófið eða skilað því samt.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
Ef vafrinn lokast, tölvan endurræsist eða netsamband rofnar skaltu opna Canvas aftur og halda próftöku áfram eins fljótt og hægt er.
Sé próftími er ekki liðinn er yfirleitt hægt að halda áfram að taka prófið. Í New Quizzes skaltu nota halda áfram ef sá valkostur birtist.
Áður en þú skilar prófinu skaltu athuga hvort nýjustu svörin hafi vistast. Einnig er oft hægt að sjá tímamerkinguna síðast vistað.
Tilkynntu tæknileg vandamál strax
Hafðu samband við kennara eins fljótt og hægt er ef tæknileg vandamál koma upp. Láttu fylgja heiti námskeiðs, heiti prófs, hvenær vandinn kom upp, hvaða tæki og vafra þú notaðir, skýra lýsingu á því sem gerðist og skjáskot ef hægt er.
