Heim > Nemendur > Tilkynningar

Tilkynningar

Tilkynningar í valmynd námskeiðs sýnir allar tilkynningar sem kennari/kennarar námskeiðs hafa sent. Til að skoða tilkynningu er smellt á titil. Með því að nota síur er hægt að endurraða tilkynningunum eftir þörfum. Nýjar tilkynningar geta einnig birst í skilaboðum frá Canvas, til dæmis í tölvupósti eða sem skilaboð í appi, sem og í nýlegri virkni og á verkefnalista.

Athugaðu líka leiðbeiningar um skilaboð. Sumir kennarar nota skilaboð í Canvas til að eiga samskipti við nemendur í stað tilkynninga eða samhliða þeim. Þar geta nemendur einnig sent skilaboð til annarra notenda í námskeiðinu.