Heim > Nemendur > Þátttakendur og hópar

Þátttakendur og hópar

Fólk í valmynd námskeiðs sýnir hverjir eru skráðir í námskeiðið. Ef kennari notar hópa gætirðu einnig séð þá á þessum stað (flipinn hópar efst) og hvaða nemendur tilheyra hverjum hópi. Við hópa sem þú ert meðlimur í er heimsækja tengill til að heimsækja heimasvæði hópsins. Í sumum tilvikum gæti sjálfsskráning í hópa verið leyfð og þá geturðu skráð þig í hóp.

Oftast er tengillinn fólk aðgengilegur í valmynd námskeiðs en ef kennari hefur valið að fela tengilinn má einnig nálgast hópa í aðalvalmynd Canvas. 

Hver hópur í Canvas eignast sína eigin heimasíðu þar sem hópmeðlimir geta unnið saman. Þar má deila skrám, búa til síður, senda tilkynningar og taka þátt í hópumræðum. Ef unnið er að hópverkefni þarf að passa að skil verkefnisins fara ávallt fram í verkefninu inn á námskeiðsvefnum, en ekki á svæði hópsins.