Það verkfæri sem er mest notað til að leyfa nemendum að skila inn í Canvas t.d. textaskjali eða myndbandi. Möguleikarnir eru margvíslegir s.s. einkunn og endurgjöf með matskvarða, hópverkefni, endurtekin skil o.m.fl.
Í umræðum læra nemendur hver af öðrum, takast á við að svara spurningum samnemenda og kennara, þjálfast í að útskýra mál sitt og nota tungutak fræðanna.
Jafningjamat felst í að nemendur leggja mat á verkefni samnemenda. Nemendur byrja á að skila verkefni og fá síðan aðgang að verkefni eins eða fleiri samnemenda til að meta.
FF er fjölbreytt safn verkfæra í Canvas sem ætluð eru til að auka virkni nemenda og möguleika kennara á fjölbreyttum kennsluháttum í stafrænu umhverfi.
Í Canvas eru tvö prófakerfi, hið sígilda og það nýja. Spurningabankar kerfanna eru einnig aðskildir. Nýja prófakerfið mun að lokum taka við af því sígilda.
Inspera er rafrænt prófakerfi HÍ. Það býður upp á mikið öryggi í próftöku og fjölda spurningagerða. Einkunnir úr Inspera prófum er hægt að birta í einkunnabók Canvas.
Uppsetning sjúkra- og endurtökuprófs og frágangur þess í einkunnabók. Prófinu er eingöngu úthlutað til tiltekinna nemenda.
Verkfræði- og náttúruvísindasvið býður sínum kennurum upp á að nota Gradescope LTI tengingu inni í Canvas.
Samvinnutólið gerir nemendum kleift að vinna saman í skjali í gegnum Google eða Office.
Í matsmöppum getur kennari sett fram kröfur og fylgst með framvindu nemenda. Hver notandi getur sett upp eigin sýnishornamöppur.