Jafningjamat
Í jafningjamati felst að nemendur leggja mat á verkefni samnemenda, yfirleitt út frá viðmiðum sem kennari gefur. Nemendur byrja á að skila verkefni og fá síðan aðgang að verkefni eins eða fleiri samnemenda til að meta. Mælt er með notkun matskvarða í jafningjamatsverkefnum (leiðbeiningar um matskvarða).
Ígrundun
Nemandi ígrundar verk samnemanda út frá forsendum sem kennari gefur t.d. í matskvarða og fær innsýn í það hvernig hans eigið verk er metið af samnemendum. Jafningjamat er hugsað sem hluti af námsferli nemanda en oftast ekki sem hluti af námsmati og lokaeinkunn.
Dýpri skilningur
Með jafningjamati dýpkar skilningur nemenda á viðmiðum verkefnisins, þau sjá fleiri sjónarhorn og túlkanir á þeim og geta lært af því til að bæta eigið verkefni.
Að fá hjálp við að bæta verkefni
Tilgangur jafningjamats er að nemendur hjálpi hver öðrum að við að ná betri árangri frekar en að mat nemenda gildi til einkunnar. Nemendur gefa athugasemdir sem ætlaðar eru til að styrkja og hjálpa samnemanda að bæta verkefni. Jafningjamat er góður undanfari að lokaskilum á verkefni sem kennari metur.
Lögð er rík áhersla á að kennari útskýri vel fyrir nemendum út á hvað jafningjamatið gengur, hvað skuli meta og hvernig og láti nemendum í té viðmið til að nota við matið s.s. með matskvarða.
Einnig að ráðleggja nemendum um viðmið varðandi samskipti, gæta velsæmis, viðhafa kurteisi í samskiptum, að nefna t.d. hvað þyki gott í verkefni áður en nefnt er hvað mætti laga eða vera skýrara.
Gott er að útskýra fyrir nemendum muninn á endurgjöf og einkunnagjöf. Einkunnagjöf er til að meta/dæma verkefni út frá kvarða s.s. 0-10 og hefur yfirleitt vægi í lokaeinkunn. Markmiðið með endurgjöf er hins vegar að gefa nemanda tækifæri til að bæta frammistöðu sína.
Um jafningjamat í Canvas verkefni
Jafningjamat er virkjað í hefðbundnu Canvas verkefni, sjá nánar: Verkefni (skilahólf).
- Mat nemenda á verkefnum gildir ekki til einkunnar. Gert er ráð fyrir að kennari gefi einkunn fyrir verkefnið en líkt og önnur verkefni getur það verið án vægis í lokaeinkunn.
- Kennarar geta skoðað niðurstöður jafningjamats í SpeedGrader um leið og gefin er einkunn og endurgjöf.
- Eftir að nemandi hefur vistað mat í matskvarða getur hann ekki breytt matinu í matskvarðanum, sem getur verið erfitt ef nemandi gerir mistök.
- Ræður illa við jafningjamat í hópverkefnum nema kennari deili út jafningjamatinu handvirkt, sem getur verið tímafrekt. Sé Canvas látið deila út jafningjamati í hópverkefni getur nemandi sem á að meta tvö verkefni fengið úthlutað verkefni tveggja nemenda sem eru í sama hópi og þ.a.l. metið sama hópverkefnið tvisvar.
- Hægt að virkja sjálfsmat (gert í matskvarða).
- Eftir að einkunnir hafa verið birtar getur nemandi skoðað bæði mat samnemenda og mat kennarans.
Hópverkefni
Þegar um hópverkefni (eða pör) er að ræða hentar betur að nota jafningjamat í FeedbackFruits.
Jafningjamat í umræðum
Í umræðum er einnig boðið upp á jafningjamat.
FeedbackFruits
Sjá leiðbeiningar um jafningjamat í FeedbackFruits.
Gátlisti vegna jafningjamats í FeedbackFruits – Með því að fylla listann út og senda er óskað eftir aðstoð við uppsetningu á jafningjamatsverkefni í FeedbackFruits.
Nemendur meta vinnuframlag hópmeðlima
Hér er ekki um eiginlegt jafningjamat að ræða því nemendur eiga engu að skila, heldur eiga nemendur að meta hvernig hópmeðlimir stóðu sig. Hér passar að nota FeedbackFruits tólið mat á hópmeðlimum (e. group member evaluation).
Meira um jafningjamat í Canvas verkefni:
- How do I use peer review assignments in a course?
- How do I create a peer review assignment?
- How do I manually assign peer reviews for an assignment?
- How do I automatically assign peer reviews for an assignment?
- How do I view student peer review comments as an instructor?
Comparison of Peer Evaluation Tools: FeedbackFruits, Canvas, and Turnitin.
Center for Teaching Innovation and Canvas@Cornell, Cornell University.
