Matskvarðar
Kostir þess að nota matskvarða
Hlutlægi og gagnsæi
Matskvarði stuðlar að hlutlægu og gagnsæju námsmati og gefur nemendum innsýn í námsmatið.
Væntingar kennara
Matskvarði gefur til kynna væntingar kennarans og hvað er mikilvægt.
Hjálpar við vinnu verkefnis
Matskvarði gefur nemendum upplýsingar um út frá hvaða forsendum verk þeirra muni verða metið og hjálpar til við vinnu verkefnisins.
Styrkleikar og veikleikar
Að loknu námsmati fá nemendur í hendur mikilvæg gögn um styrkleika og veikleika eigin verkefnis, geta notað námsmatið til að bæta árangur sinn og jafnvel skila verkefni aftur ef þannig háttar.
Niðurstöður rannsókna
Niðurstöður rannsókna hafa sýnt fram á að nemendur kunna að meta námsmat með matskvarða og nýta sér niðurstöðurnar í náminu (Reddy and Andrade, 2010).
Aukið samræmi í einkunnagjöf
Matskvarðar auka samræmi í einkunnagjöf, hver úrlausn er metin út frá sömu viðmiðum, einnig þegar fleiri kennarar sjá um námsmatið.
Merkingarbær endurgjöf
Matskvarði í jafningjamati hjálpar nemendum að gefa og fá hagnýta merkingarbæra endurgjöf.
Tímasparandi
Notkun matskvarða getur sparað tíma við námsmatið.
Nánari leiðbeiningar um bætta matskvarða
Búa til matskvarða skref fyrir skref
Á vef kennslumiðstöðvar háskólans Colorado Boulder eru vandaðar leiðbeiningar þar sem farið er í gerð matskvarða skref fyrir skref. Fjallað er um mismunandi tegundir matskvarða, bestu venjur við hönnun þeirra og notkun, og sýnd nokkur dæmi um ólíka matskvarða.
