Tilbúnir matskvarðar
Í opnu efni í Canvas (commons) er að finna tilbúna matskvarða sem kennari getur flutt inn í námskeið eða eigið æfingasvæði í Canvas. Eftir að kennari hefur flutt pakkann með matskvörðunum inn á æfingasvæði eða námskeið eru matskvarðarnir aðgengilegir í hvaða námskeiði kennarans sem er. Matskvarðana er hægt að nota óbreytta eða aðlaga að eigin verkefnum.
Matskvarði fluttur úr opnu efni í Canvas á námskeiðsvef
- Smelltu á Opið efni í Canvas valmyndinni.

- Í fyrsta skipti sem kennari fer í opið efni þarf að heimila. Smelltu á Heimila.

- Sláðu „matskvarði“ í leitargluggann (án gæsalappa). Þá koma upp matskvarðar sem hefur verið deilt í opnu efni.
- Smelltu á titil þess sem þú vilt skoða eða flytja inn t.d. matskvarðar eða rubrics.

- Með því að smella á preview og síðan á tengil fyrir neðan er hægt að skoða hvern matskvarða fyrir sig. Undir details er hægt að sjá nánari upplýsingar.

- Til að flytja matskvarðana/verkefnin inn á æfingasvæðið þitt skaltu smella á Import/Download hnappinn hægra megin.

- Merktu við æfingasvæðið þitt eða annað námskeið. Athugaðu þó að öll verkefnin/matskvarðarnir flytjast inn í námskeiðið, svo þú gætir þurft að eyða því sem ekki hentar að nota ef þeir eru fluttir inn í alvöru námskeið.

- Smelltu að lokum á hnappinn Import into course fyrir neðan og þá ættirðu að fá skilaboð um að innflutningur hafi hafist. Það getur tekið svolitla stund áður en verkefnin með matskvörðunum birtast á æfingasvæðinu/í námskeiðinu.

Verkefnin með matskvörðunum koma fram í einingu á forsíðu (einingasíðu). Óhætt er að eyða einingunni. Verkefnin eru raunverulega geymd undir verkefni í valmynd námskeiðsins.







