Matskvarði settur upp
Í byrjun myndbandsins er stutt kynning á matskvörðum, sýndir mismunandi matskvarðar og einkunnagjöf með matskvarða í SpeedGrader. Matskvarðarnir í myndbandinu: Matskvarði fyrir hópverkefni í stærðfræði (höfundur óþekktur), matskvarði fyrir Bakkalárritgerðir í þjóðfræði sem Eva Þórdís Ebenezersdóttir lagði til og matskvarði fyrir lestrardagbók frá Guðrúnu Geirsdóttur.
Eldri matskvarði notaður sem grunnur
Þegar nota á eldri matskvarða sem grunn fyrir nýjan er mælt með því að afrita fyrri matskvarðann undir Matskvarðar í valmynd námskeiðs, gefa afritinu nýtt heiti, breyta því sem þarf og setja að því loknu nýja matskvarðann í verkefnið.
Mögulegt er að framkvæma ofangreint inn í verkefni, setja eldri matskvarðann í verkefnið, gefa honum nýtt heiti þar og gera á honum breytingar. Canvas mun sjá um að úr verði nýr matskvarði en það vinnulag getur haft í för með sér ófyrirséðar afleiðingar síðar.
Ef einungis á að breyta stillingum matskvarðans er óþarfi að búa til nýjan, þar sem stillingar matskvarða virka eingöngu í viðkomandi verkefni. Sjá nánar: Matskvarði settur í verkefni, umræðu eða próf.
