Heim > Nemendur > Fjarfundir

Fjarfundir

Nokkuð mismunandi er hvort kennarar nota Microsoft Teams fyrir fjarfundi með nemendum eða Zoom. Einnig hvort sami fundarhlekkurinn er notaður allt misserið og hafður efst á heimasíðu námskeiðs eða hvort nýr fundarhlekkur er í hverri viku námskeiðs. Fjarfundir eru oft einnig birtir í dagatali námskeiðs ásamt tengli til að opna fund. Það er hægt að taka þátt í fundi í gegnum vafrann og ekki nauðsynlegt að hafa forritin uppsett á tölvunni, þó það gefi að einhverju leyti fleiri möguleika.

Kennarar geta haft mismunandi reglur varðandi þátttöku nemenda á fjarfundi en yfrleitt þykir æskilegt að nemendur séu í mynd og undir réttu nafni. Gott er að muna eftir að slökkva á eigin hljóðnema á meðan aðrir tjá sig til að lágmarka hljóðtruflanir.
Ath. fundir sem eru teknir upp og persónuvernd. 

Nemendur geta einnig sett upp fjarfundi t.d. á síðu í heimasvæði hóps eða annars staðar þar sem Canvas ritillinn er notaður.