
FeedbackFruits er viðbót í Canvas sem er notuð í sífellt fleiri námskeiðum. Hún inniheldur margs konar tól m.a. fyrir jafningjamat, hópvinnu, sjálfsmat, teymisnám og aðrar gerðir viðfangsefna sem krefjast þátttöku nemenda. FF tólin skiptast í þrjá meginflokka:
- Tól til að gera námsefni gagnvirkt.
- Tól sem tengjast endurgjöf og námsmati.
- Tól sem fela í sér samvinnu nemenda og umræður.
FeedbackFruits-verkefni eru oftast frekar notendavæn en ítarlegar leiðbeiningar fyrir nemendur á ensku eru tiltækar fyrir hvert verkfæri. Ef kennari biður þig um að vinna FeedbackFruits-verkefni er gott að spyrja hvaða verkfæri er notað svo þú getir horft á stutt myndband og kynnt þér réttu leiðbeiningarnar.
Tólin í FeedbackFruits
Gagnvirkt námsefni
Gagnvirk hljóðskrá er FeedbackFruits-verkfæri sem gerir hljóðefni virkt og gagnvirkt í stað þess að nemendur hlusti einungis passíft. Kennari getur sett inn spurningar og umræðupunkta beint inn í hljóðið, og nemendur geta svarað, tekið þátt í umræðum og merkt við ákveðna staði í efninu ef þeir vilja spyrja eða gera athugasemd. Þetta getur hjálpað nemendum að vinna efnið á eigin hraða og undirbúa sig betur.
Sjá leiðbeiningar: Gagnvirk hljóðskrá (e. Interactive Audio)
Gagnvirkt myndband er notað til að vinna með myndbandsefni á virkan hátt. Kennari getur sett inn spurningar og umræðuverkefni inn í myndbandið og nemendur geta svarað, spurt spurninga og tekið þátt í umræðum um efnið.
Sjá leiðbeiningar: Gagnvirkt myndband (e. Interactive Video)
Gagnvirkt skjal er notað til að vinna með texta eða skjöl á virkan hátt. Kennari getur sett inn spurningar og umræðupunkta inn í skjalið og nemendur geta svarað, merkt við ákveðna staði og rætt efnið á meðan þeir lesa.
Sjá leiðbeiningar: Gagnvirkt skjal (e. Interactive Document)
Endurgjöf og mat
Endurgjöf fyrir hæfni er notuð þegar meta á frammistöðu sem byggist á tiltekinni hæfni, til dæmis í kynningum, munnlegum prófum eða viðtölum. Nemendur fá þá endurgjöf út frá skilgreindum hæfniþáttum og viðmiðum.
Sjá leiðbeiningar: Endurgjöf fyrir hæfni (e. Skill Review)
Endurgjöf fyrir verkefni er notuð þegar kennari vill gefa skipulagða og skýra endurgjöf fyrir innsenda vinnu. Nemendur skila verkefni og fá endurgjöf út frá viðmiðum eða matskvarða sem hjálpar þeim að sjá hvað gekk vel og hvað má bæta.
Sjá leiðbeiningar: Endurgjöf fyrir verkefni (e. Assignment Review)
Jafningjamat er notað þegar nemendur gefa hver öðrum endurgjöf fyrir verkefni eða drög. Markmiðið er að hjálpa nemendum að bæta eigið verk, læra af verkum annarra og vinna með skýr matsviðmið.
Sjá leiðbeiningar: Jafningjamat (e. Peer Review)
Mat á hópmeðlimum er notað í hópverkefnum til að meta framlag hópmeðlima. Nemendur meta eigið framlag og framlag annarra í hópnum, sem getur hjálpað til við að gera samvinnuna sýnilegri og sanngjarnari.
Sjá leiðbeiningar: Mat á hópmeðlimum (e. Group Member Evaluation)
Sjálfsmat á hæfni er notað þegar nemendur meta eigin hæfni og frammistöðu. Það hjálpar þeim að ígrunda hvað þeir gera vel og hvað þeir vilja þróa áfram.
Sjá leiðbeiningar: Sjálfsmat á hæfni (e. Self-Assessment of Skills)
Sjálfsmat á verkefni er notað þegar nemendur fara yfir eigið verkefni áður en eða eftir að þeir skila því. Það hjálpar þeim að átta sig betur á styrkleikum verkefnisins og hvað mætti laga eða bæta.
Sjá leiðbeiningar: Sjálfsmat á verkefni (e. Self-Assessment of Work)
Sjálfvirk endurgjöf er notuð til að gefa nemendum sjálfvirka endurgjöf á skrifleg verkefni. Tólið hjálpar nemendum að greina atriði sem hægt er að bæta í textanum áður en lokaútgáfu er skilað.
Sjá leiðbeiningar:
Sjálfvirk endurgjöf (e. Automated Feedback)
- Automated Feedback | Choosing criteria as a student
Þetta er notað þegar nemendur fá að velja sjálfir hvaða viðmið eiga að gilda fyrir sjálfvirku endurgjöfina. Þannig geta þeir beint athyglinni að þeim þáttum í textanum sem skipta mestu máli fyrir viðkomandi verkefni. - Automated Feedback | Student Autonomy | Student Perspective
Þetta er notað þegar kennari hefur gefið nemendum meira sjálfstæði í sjálfvirku endurgjöfinni. Nemendur geta þá sjálfir hlaðið inn skjali og stillt viðmið til að fá endurgjöf sem hentar þeirra eigin vinnu og áherslum.
Samvinna og umræður
Gagnvirk kynning er notuð til að gera kynningar virkari og halda betur athygli nemenda. Nemendur svara spurningum meðan á kynningu stendur og fá þannig tækifæri til að fylgjast betur með og vinna með efnið jafnóðum.
Sjá leiðbeiningar: Gagnvirk kynning (e. Interactive Presentation)
Skilningsverkefni er notað til að hjálpa nemendum að vinna markvisst með námsefni og sýna skilning sinn á því. Nemendur lesa eða fara yfir efni sem kennari leggur inn og gera athugasemdir eða svör út frá ákveðnum þemum eða viðfangsefnum.
Sjá leiðbeiningar: Skilningsverkefni (e. Comprehension)
Könnun er notuð til að prófa þekkingu nemenda með opnum spurningum eða fjölvalsspurningum. Hún getur hjálpað nemendum að sjá hvar þau standa og kennara að sjá hvernig þeim gengur að tileinka sér efnið.
Sjá leiðbeiningar: Könnun (e. Quiz)
Teymisnám er notað í námsverkefnum þar sem nemendur undirbúa sig fyrst sjálfir og vinna síðan með teyminu sínu. Í FeedbackFruits styður tólið sérstaklega einstaklingshluta og teymishluta „readiness assurance“ ferlisins, þar sem nemendur svara fyrst sjálfir og síðan saman í hópi.
Sjá leiðbeiningar: Teymisnám (e. Team Based Learning)
Umræða um málefni er notuð þegar nemendur eiga að ræða ákveðið viðfangsefni eða spurningu. Nemendur setja inn eigin innlegg og svara svo hvert öðru til að byggja upp umræðu og dýpri skilning á efninu.
Sjá leiðbeiningar: Umræða um málefni (e. Discussion on Topic)
Umræðuverkefni er notað þegar nemendur skila eigin vinnu og ræða síðan verk hvers annars. Markmiðið er að efla samræður um verkefni, hugmyndir og lausnir með skipulagðri jafningjaumræðu.
Sjá leiðbeiningar: Umræðuverkefni (e. Discussion on Work)
Hópar
Hópamyndun er notuð til að skipta nemendum í hópa á markvissan hátt. Kennari getur látið tólið mynda hópa sjálfvirkt út frá ákveðnum forsendum til að stuðla að jafnvægi, virkri samvinnu og betri hópavinnu.
Sjá leiðbeiningar: Hópamyndun (e. Group Formation)
