Til að skoða einkunnir skaltu opna námskeið og fara í einkunnir í valmynd námskeiðsins. Fyrir utan einkunnir má sjá þar stöðu skilaverkefna og athugasemdir eða matskvarða sem hafa verið gerðir aðgengilegir. Þú getur raðað atriðum eftir skiladegi, einingu/námshluta/viku, heiti verkefnis eða verkefnaflokki. Í sumum námskeiðum geta ákveðnar einkunnir verið faldar t.d. heildareinkunn.
Á einkunnasíðunni birtist ekki alltaf strax einkunn. Þar getur verið sýnt með tákni að þú hafir skilað verkefninu en að það hafi ekki enn verið metið. Einnig geta verið merkingar eins og vantar sem gefur til kynna að verkefni hafi ekki verið skilað áður en skilafrestur rann út eða seint ef verkefni var skilað eftir skilafrest. Ef atriði birtist með gráu letri gildir það ekki til lokaeinkunnar.
Mikilvægt er að skoða endurgjöfina, ekki aðeins einkunnina. Á einkunnasíðunni geturðu smellt á sýna allar upplýsingar og skoðað almenna endurgjöf og niðurstöður úr matskvarða á einum stað fyrir öll verkefni. Endurgjöf er einnig hægt að skoða með því að smella á heiti verkefnis og á skoða endurgjöf. Endurgjöfin getur verið sem skriflegar athugasemdir, viðhengi, niðurstöður úr matskvarða, hljóð- eða myndathugasemdir eða glósur og merkingar í skjalinu sem þú skilaðir. Um leið og endurgjöf er tiltæk ættirðu einnig að finna tákn við verkefnið á einkunnasíðunni, til að skoða endurgjöf og niðurstöður úr matskvarða ef hann var notaður.
Á endurgjafarsíðunni geturðu bætt athugasemd við skilin þín, hlaðið upp viðhengi, tekið upp eða hlaðið upp hljóð- eða myndathugasemd. Það sama á við í hópverkefnum.
Safari styður ekki upptöku á hljóð- eða myndathugasemdum og því er mælt með Chrome eða Firefox fyrir þann möguleika.
Hvað ef einkunn gerir þér kleift að setja inn prufueinkunn til að sjá hvernig hún gæti haft áhrif á heildareinkunnina þína. Þetta getur verið gagnlegt til áætlunar, en er aðeins þín eigin áætlun en ekki opinber niðurstaða. Þú getur fjarlægt prufueinkunnina hvenær sem er og farið aftur í raunverulega einkunn.
Í flestum tilvikum hafa nemendur aðgang að námskeiðum sem þau hafa lokið. Til að opna fyrra námskeið skaltu smella á námskeið í aðalvalmynd Canvas, velja öll námskeið, finna þar námskeiðið undir fyrri innritunum og opna einkunnir.
