Heim > Nemendur > Canvas Studio

Canvas Studio

Canvas Studio upptökuforritið er aðgengilegt öllum notendum Háskóla Íslands. Kennari getur notað það til að deila myndböndum eða hljóðupptökum í námskeiði og í sumum tilvikum gætir þú þurft að nota það til að taka upp, hlaða upp eða skila hljóð- og myndefni í námskeiðinu þínu. Efni úr Studio er hægt að birta á síðum í námskeiði, í umræðum og nemendur geta skilað myndbandi úr Studio safninu sínu í verkefni (ef uppsetning verkefnisins gerir ráð fyrir því). Þú getur opnað Studio í aðalvalmynd Canvas sem og í verkfærum á borð við Canvas ritilinn.

See alsoStudio in the Rich Content Editor