Um Canvas aðgang starfsfólks
Til að geta unnið í Canvas þarf starfsmaður aðgang að kerfinu. Aðgangur er gefinn í gegnum sk. kerfishlutverk. Um nokkur mismunandi hlutverk er að velja. Hverju þeirra tilheyra heimildir til að framkvæma ólíkar aðgerðir í kerfinu. Sem dæmi þarf starfsmaður sem aðstoðar nemendur með Canvas aðrar heimildir í kerfinu en sá sem aðstoðar kennara deildar við skráningu einkunna. Það hlutverk sem starfsmaður fær miðast við þau verkefni sem hann þarf að sinna í Canvas.
Hvaða kerfishlutverk hef ég í Canvas?
Svona ferðu að til að sjá hlutverkið þitt í Canvas.
- Smelltu á stjórn í bláa borðanum og á fræðasvið eða deild sem þú hefur aðgang að.

- Farðu í stillingar neðst í valmyndinni vinstra megin.
- Smelltu á flipann stjórnendur efst á síðunni. Hér ættir þú að sjá nafnið þitt ásamt heiti hlutverks.
Athugaðu að í sumum tilvikum getur starfsmaður haft mismunandi hlutverk t.d. eitt fyrir námskeið fræðasviðsins en annað hlutverk innan tiltekinnar deildar sem gefur þá oft ítarlegri heimildir.
- Samkvæmt myndinni að ofan hefur Anna kerfishlutverkið námskeið breyta. Til að sjá nánar hvað það felur í sér skaltu skoða síðuna sækja um kerfisaðgang.


