Skoðunaraðgangur að námskeiði
Skoðunaraðgangur veitir notanda heimild til að skoða birt efni námskeiðs, umræður og tilkynningar en notandinn getur ekki tekið þátt í námskeiðinu líkt og nemandi, t.d. ekki svarað innleggjum í umræður eða skilað verkefni. Skoðunaraðgangur er gefinn í einstökum námskeiðum.
Kennarar geta gefið notanda (með HÍ netfang) skoðunaraðgang að sínum námskeiðum. Sjá að gefa skoðunaraðgang í leiðbeiningum kennara.
Starfsfólk Nemendaráðgjafar
Starfsfólk nemendaráðgjafar veitir aðstoðarfólki nemenda skoðunaraðgang að námskeiðum, samkvæmt samningi nemanda um sértæk úrræði. Sjá upplýsingar á vef Nemendaráðgjafar. Canvas skoðunaraðgangur er gefinn í Uglu.
Aðstoðarfólki nemenda gefinn skoðunaraðgangur
- Opnaðu Uglu.
- Farðu í kerfi og verkfæri í valmyndinni vinstra megin.
- Smelltu á Nemendaráðgjöf, í reitnum nemendur.
- Smelltu á skoðunaraðgangur að námskeiðum.
- Finndu notandann annað hvort með kennitölu eða notandanafni (án @).
- Sláðu inn námskeiðsnúmer og veldu rétt misseri.
- Smelltu á vista.

Liðið getur allt að ein klukkustund þar til upplýsingarnar uppfærast í Canvas og skoðandi fær aðgang.
Hvernig kemur skoðandi fram í námskeiði?
Undir fólk í valmynd námskeiðs er hægt að fylgjast með hvort aðstoðarmanneskja hefur fengið skoðunaraðgang. Hægt er að slá nafn viðkomandi í leitarlínuna efst eða með því að velja skoðandi í listanum undir öll hlutverk.

Aftan við nafn skoðanda, undir hlutverki kemur fram „fylgist með: enginn“. Þetta er eðlilegt og merkir að skoðandinn sé ekki tengdur við neinn tiltekinn nemanda heldur hafi almenna skoðunarheimild í námskeiði.

Til fróðleiks:
Í Canvas er mögulegt að tengja tiltekinn nemanda við skoðanda (e. observer). Í því tilviki getur skoðandi t.d. fylgst með einkunnum nemandans. Möguleikinn á við þegar um unga nemendur er að ræða og foreldrum er veittur skoðunaraðgangur. Sá möguleiki er ekki notaður við HÍ.

