Heim > Stjórnsýsla > Sækja um Canvas kerfisaðgang

Sækja um kerfisaðgang

Kerfisaðgang er hægt að gefa fyrir tiltekna deild (eða deildir), fræðasvið eða háskólann í heild (ekki fyrir einstök námskeið). Um nokkur hlutverk er að ræða sem gefa starfsmanni mismunandi heimildir og aðgengi að ólíkum tólum (líkt og í Uglu). Velja skal viðeigandi hlutverk út frá verkefnum starfsmanns. 

Beiðnir um Canvas kerfisaðgang eða breytingar á aðgengi starfsmanns skal senda á hjalp@hi.is og setja „Canvas kerfisaðgangur“ í málefni.
Mikilvægt er einnig að láta vita þegar afnema á Canvas-aðgang, t.d. þegar starfsmaður hættir eða flytur sig til í starfi.

Hér fyrir neðan má sjá nánari upplýsingar um einstök kerfishlutverk og tilheyrandi heimildir.  Efnið er einfaldað fyrir birtingu hér en mögulegt er að fá nánari upplýsingar ef þörf krefur.

Skoða námskeið

Hlutverkið gefur notanda heimild til að skoða allt innihald í námskeiðum deildar, fræðasviðs eða háskólans (eftir því hvar hlutverkið er gefið). Þetta felur m.a. í sér að skoða birt efni jafnt sem óbirt, verkefni, próf, einkunnir og endurgjöf.

Hlutverkið hentar starfsfólki sem þarf að geta fylgst með og skoðað námskeið, án þess að þurfa að búa til, setja upp, skrá eða breyta einhverju.

(Heiti í Canvas: Námskeið skoða)

Skoða námskeið án aðgangs að einkunnum

Hlutverkið veitir heimild til að skoða öll námskeið deildar, fræðasviðs eða háskólans (eftir því hvar hlutverkið er gefið). Það felur m.a. í sér aðskoða: birt efni námskeiðs jafnt sem óbirt, kennsluáætlun, tilkynningar, verkefni og próf. Notandinn fær ekki aðgang að einkunnabókum eða SpeedGrader.

Þetta er það hlutverk sem oftast er gefið starfsfólki sem aðstoðar nemendur. Þegar hlutverkið er gefið í rót (fyrir háskólann í heild) fylgir sjálfkrafa með heimildin til að aðhafast sem notandi (e. act as user). Hún gefur starfsmanni kost á að sjá hlutina frá sjónarhorni tiltekins notanda.

(Heiti í Canvas: Námskeið skoða án einkunna)

Breyta námskeiðum

Hlutverkið veitir notanda heimild til að breyta námskeiðum deildar, fræðasviðs eða háskólans (eftir því hvar hlutverkið er gefið). Það felur m.a. í sér að búa til, setja upp, skrá eða breyta inn á námskeiðum, svo sem að breyta birtu efni námskeiðs jafnt sem óbirtu, setja upp (eða breyta) verkefni, próf og kennsluáætlun, skrá einkunnir nemenda og endurgjöf.

Hlutverkið hentar starfsfólki sem aðstoðar kennara með skráningu einkunna í Canvas, uppsetningu námskeiða, námsefnis, verkefna og annars tilheyrandi.

(Heiti í Canvas: Námskeið breyta)

Breyta námskeiðum án aðgangs að einkunnum

Hlutverkið veitir notanda heimild til að breyta námskeiðum deildar, fræðasviðs eða háskólans (eftir því hvar hlutverkið er gefið). Það felur m.a. í sér að búa til, setja upp, skrá eða breyta inn á námskeiðum t.d. breyta birtu efni námskeiðs jafnt sem óbirtu, setja upp (eða breyta) verkefni, próf og kennsluáætlun. Notandinn hefur einungis skoðunaraðgang að einkunnum og endurgjöf.

Hlutverkið hentar starfsfólki sem aðstoðar kennara með uppsetningu námskeiða, námsefnis, verkefna og annars tilheyrandi, en þarf ekki að geta skráð einkunnir og endurgjöf.

(Heiti í Canvas: Námskeið breyta án einkunna)

Miðlægar aðgerðir og tölfræði

Hlutverkið veitir notanda heimild til að skoða tölfræðileg gögn og stillingar, deildar eða fræðasviðs. Það hentar t.d. deildar- og fræðasviðsforsetum eða öðrum sem þurfa að hafa aðgengi að þessum gögnum. Hlutverkið er stundum veitt meðfram öðru hlutverki.

(Heiti í Canvas: Miðlægt aðgerðir tölfræði)

Aðhafast sem notandi

Þetta er stök heimild sem gefur starfsfólki kost á að bregða sér í hlutverk annars notanda og er sérstaklega notuð af þeim sem aðstoða nemendur eða kennara. Það kemur sér vel að geta skoðað hvernig hlutirnir líta út frá sjónarhorni þess sem verið er aðstoða.

Heimildina er nauðsynlegt að gefa notandanum í rót Canvas (fyrir háskólann í heild) til að hún virki, þá erfist hún niður í það fræðasvið eða deildir þar sem starfsmaður hefur fengið hlutverk.

Starfsfólki sem er gefið hlutverk í rótinni fær í flestum tilvikum sjálfkrafa þessa heimild.

Kerfisfulltrúi

Hlutverkið gefur notanda frekar víðtækar heimildir í Canvas bæði kerfislegar sem tilheyra fræðasviði eða deild og inn í námskeiðum m.a.:

  • til að breyta innihaldi námskeiða innan deildar, fræðasviðs eða háskólans (eftir því hvar aðgangurinn er gefinn). Sem dæmi að setja upp eða breyta verkefnum og prófum, breyta birtu efni námskeiðs jafnt sem óbirtu og skrá eða breyta einkunnum og endurgjöf.
  • Breyta stillingum fyrir svið/deildir.
  • og deila spurningabönkum miðlægt.