Bæði nemendur og kennarar hafa aðgang að upptökuforritinu Studio í Canvas valmyndinni. Það hentar vel í styttri myndskeið (15-30 mín.).
Panopto upptökuforritið er uppsett í flestum kennslutölvum HÍ. Það er besti kosturinn til að taka upp kennslu og býður einnig upp á streymi.
Nemendur og kennarar geta sett upp Teams fund í Canvas. Til dæmis er hægt að búa til fundarhlekk í ritlinum og þannig bæta fundi inn í venjulegt efni í Canvas.
Til að nota Zoom inni í Canvas þarf að virkja það í námskeiði og fá HÍ-leyfi (e. Education licence) fyrir Zoom hjá Upplýsingatæknisviði.