Panopto
Um Panopto
Með Panopto getur kennari tekið upp fyrirlestra, smærri skjáupptökur og kynningar. Panopto er einfalt í notkun og hægt að skoða upptökurnar í flestum vöfrum og snjalltækjum.
- Þegar upptaka er sett í gang inn á námskeiðsvefnum í Canvas birtist hún sjálfkrafa undir Panopto Video tenglinum í valmynd námskeiðsins.
- Upptökurnar vistast á vefþjóni Panopto á svæði sem tengist námskeiðinu og er sérstaklega hannað til að geyma slíkar skrár og spila þær.
- Panopto er einnig hægt að nota við að streyma. Með þeim hætti geta nemendur heima fylgst með kennslunni í rauntíma.
Athugið að vista ekki upptökur í skráarsafni námskeiðs.
Uppsett á kennslutölvum
Panopto er uppsett á allflestum kennslutölvum Háskóla Íslands. Mælt er með að nota Panopto þegar kennsla er tekin upp.
Hve lengi eru upptökur geymdar í Panopto?
Upptökur í námskeiðum sem ekki hefur verið horft á í 13 mánuði eru settar í geymslu (e. archive) á Panopto vefþjóninum. Til að spila efni sem hefur verið sett í geymslu þarf að nota möguleikann „Restore from Archive“.
Upptökum sem enginn hefur horft á í 3 ár er eytt.
Ef upptökur mega ekki lenda í glatkistunni þarf að gera ráðstafanir:
- Hlaða upptöku niður og geyma á öruggum stað.
- Afrita eða færa upptöku í möppuna „My Folder“ á Panopto vefþjóninum. Upptökum í þeirri möppu er ekki eytt eða þær settar í geymslu.
Aðstoð vegna Panopto (og Zoom)
Netfang: 5550 [hjá] hi.is
Sími: 525-5550
Tekið upp í hljóðklefa
Í Kennslumiðstöð gefst kennurum kostur á að bóka hljóðklefa til notkunar í upptöku. Athugið að ef þörf er á ráðgjöf eða aðstoð við notkun hljóðklefa þarf að bóka það sérstaklega.
Nánari upplýsingar:
Netfang: kemst [hjá] hi.is
Sími: 525 4447
