Spurningar settar í Panopto upptöku
Með því að setja spurningar í upptöku geturðu kannað skilning nemenda á viðfangsefninu.
Boðið er upp á eftirfarandi spurningagerðir:
- Fjölvals- og fjölsvarsspurningar
- Rétt/Rangt spurningar
- Eyðufyllingar
Hægt er að:
- Leyfa nemendum að svara spurningum endurtekið.
- Láta spilun stöðvast þar til spurningu hefur verið svarað (eingöngu í fyrsta skiptið sem nemandi svarar spurningunum).
- Sýna einkunn fyrir svör og leyfa nemendum að sjá réttu svörin ásamt útskýringum.
Sjá nánar: How to Add a Quiz to a Video.
