Heim > Kennarar > Upptökur og fjarfundir > Panopto > Tekið upp með Panopto

Tekið upp með Panopto

Leiðbeiningarnar fyrir neðan gera ráð fyrir að Panopto sé þegar uppsett á tölvu. Forritið er uppsett í allflestum kennslutölvum skólans.

Með því að opna námskeiðsvefinn í Canvas og setja upptökuna af stað þar tryggirðu að hún vistist á réttum stað (í Panopto möppu námskeiðs). Panopto upptökur koma fram undir Panopto Video hlekknum í valmynd námskeiðs en kennari getur einnig látið upptökur koma fram á síðum námskeiðs eða í einingum.

Upptaka sett af stað

Leiðbeiningarnar gera ráð fyrir að Panopto upptökuforritið sé þegar uppsett á tölvuna.

  1. Opnaðu námskeiðið í Canvas og smelltu á Panopto Video tengilinn í leiðarstýringu (valmynd) námskeiðsins til vinstri. Ef Panopto Video vantar í leiðarstýringu þarftu að bæta tenglinum við fyrst, sjá nánar Stillingar námskeiðs og leiðarstýring.
  2. Smelltu á Create hnappinn og veldu eftir atvikum, Panopto for Windows eða Panopto for Mac.
panopto upptaka sett af stað
  1. Smelltu á Open Panopto hnappinn. Hér kemur yfirleitt upp viðvörun þar sem þarf að smella á Open Panopto Recorder. Panopto forritið opnast.

Í Panopto

  1. Mappa námskeiðsins ætti að vera sjálfvalin í Folder línunni. Gaktu úr skugga um það.
  2. Gefðu upptökunni lýsandi heiti við Name, þannig að þú getir auðveldlega fundið hana síðar.
  3. Veldu stillingar sem eiga við. Sjá nánar útskýringar á stillingum fyrir neðan myndina.
  4. Smelltu á Record-hnappinn til að hefja upptöku.
    Hlé á upptöku: Ef gera þarf hlé á upptöku er gott að ljúka upptökunni, vista en hefja nýja upptöku eftir hlé, hafa tvær styttri upptökur frekar en eina langa.
    Einnig er mögulegt að gera hlé á upptökunni með því að smella á Pause hnappinn (hnappurinn birtist eftir að upptaka er sett í gang) og smella á Resume hnappinn til að halda upptökunni áfram eftir hlé.
Upptaka í Panopto sett af stað

Hvað er í Panopto upptökuglugganum? 

Skýringar á stillingum:

    1. Folder – Mappa námskeiðs þarf að vera valin til að upptaka vistist á réttan stað.
    2. Name – Heiti upptökunnar. Ef heiti upptöku er ekki skráð fær hún sjálfvirkt heiti samkvæmt dagsetningu og tíma.
    3. Webcast – Hér þarf að merkja við ef streyma á upptöku. Þegar upptaka er streymd geta nemendur fylgst með upptökunni í Canvas í rauntíma, á meðan upptakan á sér stað.
    4. Hljóðsleði – Yfirleitt passar að færa bláa punktinn upp að rauða svæðinu á hljóðsleðanum. Öruggara er að gera prufuupptöku til að kanna hvernig hljóðið kemur út. 
    5. Video – Ef eingöngu á að taka upp hljóð og það sem sést á tölvuskjánum skal velja none. Ef kennari vill vera í mynd þarf að velja hér myndavél.
    6. Audio – Hljóðnemi þarf að vera valinn. Áríðandi er að prófa hljóðið. Gott er að setja hljóðsleðan upp undir rauða svæðið.
    7. Quality – Ultra er sjálfvalið og hentar vel.
    8. Capture Computer Audio – Ef á að spila t.d. youtube-vídeó, eða annað það sem notar hljóð tölvu, er betra að merkja hér við. Ef hljóð upptöku á einungis að innihalda tal kennara, er sleppt að merkja við computer audio.
    9. Secondary Sources:
      1. Capture PowerPoint – Merktu við ef upptakan á að innihalda glærur úr PowerPoint. Panopto vinnur með PowerPoint forritinu, býr til efnisyfirlit (index) og gerir mögulegt að leita í glærunum.
      2. Capture Main Screen – Merktu við ef upptakan á að innihalda það sem sýnt er á skjá tölvunnar (PowerPoint og/eða annað).
    10. PowerPoint/Main Screen – Þegar merkt er við PowerPoint (nr.9.1) tekur Panopto upp tvær rásir (við spilun getur sá sem horfir skipt á milli rásanna).
    11. Enable screen capture preview – Á við þegar notaðir eru tveir skjáir í upptöku. Þessi valkostur hefur ekki áhrif á upptökuna sjálfa.
      fps Ef upptakan felur í sér mikla hreyfingu er mælt með að stilla í 15 ramma á sekúndu (fps 15). Ef sýna þarf vídeó inn í upptökunni t.d. á Youtube er mælt með að stilla fps í 30. Ef fps er stillt of lágt geta hreyfingar í upptöku komið hökktandi út. Athugið að hærra fps skapar meira álag á tölvuna svo gott er að gera prufu til að kanna hvort tölvan höndlar það.
      kbps uppfærist sjálfvirkt m.v. hvaða upplausn og fps er valið.
    12. Record – Hnappur til að setja upptöku í gang.

Lok upptöku

  1. Smelltu á Stop-merkið.
upptaka stöðvuð
  1. Gefinn er kostur á að endurnefna upptökuna og setja inn lýsingu á henni.
    Smellið á Done.
Upptöku lokið
  1. Nauðsynlegt er að bíða þar til Upload Progress er lokið (sjá mynd), eftir það er óhætt að skrá sig út úr Panopto.
Panopto upload progress

Eftir þetta fer upptakan í vinnslu á Panopto vefþjóninum, sem getur tekið fáeinar klukkustundir, allt eftir álagi og lengd upptöku. Að því loknu verður upptakan aðgengileg nemendum í Canvas. Ef upptakan á ekki að vera aðgengileg nemendum strax að lokinni vinnslu þarf að breyta aðgangsstýringum upptökunnar.