Panopto - Að loka aðgengi að upptöku
Sjálfvalið er að nemendur fái aðgang að Panopto myndskeiði strax eftir að það hefur verið vistað í námskeiðsmöppu og vinnslu þess er lokið á vefþjóni Panopto.
Með því að tímasetja aðgengi að myndskeiði er hægt að stýra því hvenær nemendur geta horft. Þessa leið er einnig hægt að nota þegar loka þarf fyrir aðgengi að myndskeiði. Þetta er gert í stillingum myndskeiðs (tannhjólið).
Tímabil aðgengis valið
- Opnaðu námskeiðið í Canvas og smelltu á Panopto Video hlekkinn í valmynd námskeiðsins vinstra megin.
- Finndu myndskeiðið og smelltu á tannhjólið fyrir Settings. Hnappurinn kemur í ljós þegar músarbendli er haldið yfir. Gluggi opnast, athugaðu að Overview sé valið vinstra megin.


- Skrollaðu niður að Availability. Merktu við starting og until og veldu hvenær myndskeiðið á að vera aðgengilegt nemendum.
Til að loka aðgengi að myndskeiði má velja dagsetningar aftur í tímann eða langt fram í tímann.

