Heim > Kennarar > Upptökur og fjarfundir > Panopto > Panopto efnisyfirlit

Efnisyfirlit í upptöku

Í Panopto er einfalt setja upp efnisyfirlit. Með efnisyfirliti fá nemendur yfirlit um innihald upptöku og geta farið beint í ákveðna hluta hennar sem hentar vel t.d. þegar verið er að rifja upp ákveðin atriði.

Hvar birtist efnisyfirlitið?

Ef upptakan er sett á síðu kemur efnisyfirlitið fram í spilaranum undir lítilli ör neðst fyrir miðju en þegar horft er á upptökuna í Panopto kemur efnisyfirlitið fram undir Contents hægra megin.

Búa til eða breyta efnisyfirliti

edit panopto recording
Á myndinni sjást aðgerðahnappar fyrir upptöku

Þegar músað er yfir upptökun birtast aðgerðahnappar þ.á.m. Edit.
Sjá nánar: How to Add, Edit, and Delete Table of Contents Entries in a Video.

Til að breyta efnisyfirliti eða búa til nýtt er farið í Panopto Video í valmynd námskeiðs, í Edit í viðkomandi upptöku og í Contents vinstra megin. Vistað er með Apply í efra hægra horni.

Þrjár gerðir efnisyfirlits í boði

  • Efnisyfirlit með PowerPoint fyrirsögnum
    Ef merkt er við „Capture PowerPoint“ áður en byrjað er að taka upp. Býr Panopto sjálfvirkt til efnisyfirlit út frá fyrirsögnum PP glæranna. Efnisyfirlitinu er hægt að breyta eftir á.
  • Handgert efnisyfirlit
    Í handgerðu efnisyfirliti er byrjað frá grunni efnisatriði og tími sleginn inn.
  • Efnisyfirlit með „Smart Chapters“
    Smart Chapters búa til sjálfvirkt efnisyfirlit sem byggist á OCR lestri á sýnilegu efni í upptökunni. Slíkt efnisyfirlit getur orðið villandi og órökrétt en hægt er að breyta því eða slökkva á því með Hide Smart Chapters og/eða smíða nýtt efnisyfirlit frá grunni.
    hide smart chapters