Í beiðni um aðstoð er mikilvægt að lýsa vandamáli vel og láta fylgja allar viðeigandi upplýsingar, s.s. númer og nafn námskeiðs, heiti verkefnis eða prófs ef við á o.s.frv. Einnig er praktískt að láta vefslóðir fylgja, t.d. á verkefni eða annað sem við á. Skýr lýsing á vandamáli, ásamt nauðsynlegum upplýsingum, gerir aðstoðarfólki kleift að bregðast við beiðninni þinni fyrr.
Hjálparbeiðnir sem krefjast sérhæfðari þekkingar í Canvas eru sendar áfram frá hjálparborði, á Canvas-þjónustu fræðasviðs eða á Canvas-teymi Kennslusviðs.
Starfsfólk prófaskrifstofu veitir aðstoð með prófakerfið Inspera.
- Leiðbeiningar um Inspera.
- Til að fá aðstoð er best að senda skilaboð á hjalp@hi.is og setja „Inspera“ í línuna fyrir málefni.
- Til að hægt sé að birta einkunnir úr Inspera í einkunnabók Canvas þarf að stofna verkefni sem tekur við einkunnum. Sjá nánar leiðbeiningar um uppsetningu verkefnis í Canvas til að taka við einkunnum úr Inspera.
Starfsfólk Upplýsingatæknisviðs veitir aðstoð með Panopto. Best er að senda beiðni á hjalp@hi.is og setja „Panopto“ í línuna fyrir málefni. Sjá einnig leiðbeiningar um Panopto.
Til að fá aðstoð með Turnitin er best að senda skilaboð á hjalp@hi.is og setja „Turnitin“ í línuna fyrir málefni. Sjá einnig leiðbeiningar um Turnitin.
- Smelltu á Hjálp í Canvas valmyndinni (blái borðinn).
- Smelltu á Láttu vita af villum í valmyndinni sem opnast.
Best er að hafa síðuna þar sem vandamálið kom upp opna þegar þetta er gert. Canvas lætur upplýsingar um staðsetningu þína (staðsetningu vandamáls) í kerfinu fylgja með hjálparbeiðninni og með því móti fær hjálparþjónustan verðmætar upplýsingar. - Fylltu út beiðnina og smelltu á Skila beiðni.
Fyrir utan leiðbeiningar á þessum leiðbeiningavef er hægt að leita fanga á „Canvas community“ vef Instructure, eiganda námsumsjónarkerfisins Canvas. Vefurinn býður upp á ítarlegar leiðbeiningar um kerfið.
- Vídeósafn sem inniheldur kynningar á einstökum verkfærum og aðgerðum í Canvas.
- Nánari leiðbeiningar um einstakar aðgerðir, ásamt skýringarmyndum.
- Leiðbeiningar um kennara-appið: Android – iOS.
- Allar leiðbeiningar Instructure.
Með því að heimsækja Canvas samfélagið á netinu er hægt að eiga samskipti við aðra notendur Canvas og læra af þeirra reynslu.
Grunnþjálfun í Canvas – Netnámskeið fyrir kennara sem hægt er að taka á eigin hraða.
Fræðasvið, deildir og hópar kennara geta einnig óskað eftir námskeiðum um ákveðin atriði í Canvas s.s. um uppsetningu og skipulag námskeiðsvefs, kennsluáætlun, frágang einkunnabókar, matskvarða, jafningjamat, einstök verkfæri Canvas eða FeedbackFruits. Áhugasamir vinsamlegast sendið beiðni á kennslumidstod@hi.is.
