Heim > Kennarar > Þátttaka og skil > Inspera próf

Inspera próf

Einkunnir úr Inspera birtar í Canvas

Til að mögulegt sé að birta einkunnir úr Inspera prófi í Canvas þarf að setja upp verkefni í Canvas (ekki próf). Þegar stofnað er verkefni verður samhliða til dálkur í einkunnabók námskeiðs sem mun taka við einkunnum Inspera prófsins. Í ferlinu við flutning einkunna úr Inspera yfir í Canvas (með millilendingu í Uglu) fær kennari upp lista yfir þau verkefni sem hafa verið stofnuð í viðkomandi námskeiði í Canvas. Þar þarf að velja verkefnið sem á að taka við einkunnum Inspera prófsins.

Í myndbandinu er farið í uppsetningu verkefnis í Canvas sem ætlað er að taka við einkunnum frá Inspera. Einnig er útskýrt hvernig ganga þarf frá einkunnabók, vegna lokaprófs og sjúkra- og endurtökuprófs.

Sjúkra- og endurtökupróf

Til að það sé skýrt í einkunnabók hvaða nemendur tóku sjúkra- og endurtökupróf er rétt að setja upp annað verkefni fyrir þær einkunnir. Til dæmis er einfalt að afrita fyrra verkefnið og breyta heiti þess. Til að afrita verkefnið er farið í þrípunkt aftast í línu verkefnisins og valið Búa til afrit (sbr. skjáskot neðar). Þetta þarf að gera undir verkefnum í valmynd námskeiðs.

Vegna útreikninga einkunnabókar er mælt með að úthluta verkefninu eingöngu til þeirra nemenda sem taka sjúkra- og endurtökuprófið. Það er gert í uppsetningu verkefnisins undir Úthluta til og hægt að gera, hvort sem er, áður en einkunnir hafa verið fluttar úr Inspera eða eftir á. Það hefur í för með sér að útreikningar einkunnabókar taka tillit til þess að aðrir nemendur eigi ekki að taka sjúkra- og endurtökuprófið. Í aðalprófinu þarf að gefa þeim sem taka sjúkra- og endurtökupróf Undanþegið. Sjá nánari leiðbeiningar um Sjúkra- og endurtökupróf í Canvas.

búa til afrit af verkefni