Sjúkra- og endurtökupróf
Verkefnum og prófum í Canvas er hægt að úthluta eingöngu til þeirra nemenda sem eiga að skila verkefninu/taka prófið. Þegar það er gert gera útreikningar einkunnabókar ráð fyrir að aðrir nemendur eigi ekki að taka prófið eða fá einkunn fyrir það. Þar að auki kemur verkefnið eða prófið ekki fram hjá öðrum nemendum en þeim sem eru tilgreindir í uppsetningu þess, hvorki á námskeiðsvefnum eða í námskeiðsdagatali.
Uppsetning sjúkra- eða endurtökuprófs
Við uppsetningu á sjúkra- og endurtökuprófi er oft hægt að stytta sér leið og afrita lokaprófið, breyta tímastillingum og aðlaga í samræmi við sjúkra- og endurtökupróf.
- Lokapróf afritað
- Farðu í verkefni eða próf (eftir atvikum) í valmynd námskeiðs vinstra megin.
- Smelltu á valmöguleikana (þrípunkt) aftast í línu prófsins og á Búa til afrit (sbr. skjáskot neðar).
Athugið að ef um próf í sígilda prófakerfi Canvas er að ræða verður afritið í nýja prófakerfinu, svo það getur hentað betur að afrita þau ekki en setja frekar upp frá grunni.
INSPERA
Fyrir sjúkra- og endurtökupróf í Inspera er stofnað Canvas verkefni til að taka við einkunnum. Sjá nánar sérstakar Inspera leiðbeiningar um uppsetningu verkefnis sem tekur á móti einkunnum úr Inspera og um frágang einkunnabókar varðandi sjúkra- og endurtökupróf.
- Opnaðu prófið/verkefnið og smelltu á Breyta í efra hægra horni.
- Breyttu því sem þarf svo sem í lýsingu prófsins og stilltu dag- og tímasetningar m.v. sjúkra- og endurtökupróf.
Nemendur sem taka sjúkra- og endurtökupróf valdir
ATHUGÐ! Ef ekki er ljóst hvaða nemendur munu mæta í sjúkra- og endurtökuprófið má gera þetta skref síðar, t.d. eftir að nemendur hafa tekið prófið eða við frágang einkunnabókar. Þetta þarf þó að gera til að lokaeinkunn reiknist rétt.
Undir liðnum Úthluta til, neðst á síðunni, þarf að eyða Allir en velja í stað þess nöfn þeirra nemenda sem eiga að taka (eða tóku) sjúkra- og endurtökuprófið (sjá hreyfimynd fyrir neðan). Ef nafn nemanda sést ekki í nafnalistanum þarf að slá inn upphafsstafi nafnsins til að fá það fram. Útreikningar einkunnabókar munu þá taka tilliti til þess að aðrir nemendur eiga ekki að fá einkunn fyrir prófið.
- Smelltu á Vista og birta. Canvas varar við að allir nemendur fái ekki prófið. Smelltu á Halda áfram.
- Farðu í Verkefni í valmyndinni og settu sjúkra- og endurtökuprófið í sama verkefnahóp og lokaprófð, ef það er ekki þar nú þegar. Sjá nánar um verkefnahópa í leiðbeiningum um vægi og fjölda punkta.
- Ef nemandi mætti í lokaprófið og fékk einnig einkunn fyrir það þarf að velja undanþegið fyrir þá einkunn í einkunnabókinni, til að einkunn fyrir sjúkraprófið gildi í útreikningi á lokaeinkunn nemandans. Það sama á við um nemendur sem tilkynntu veikindi í lokaprófinu.
Smella þarf í einkunnareit nemanda, á örina í hægra megin í reitnum og merkja við undanþegið í panel sem birtist hægra megin.


