Heim > Kennarar > Þátttaka og skil > Spurningabankar

Spurningabankar

Í Canvas eru tvö prófakerfi, það sígilda og það nýja með tvo aðskylda spurningabanka. Kennarar geta valið hvort kerfið er notað í námskeiði. Ekki er hægt að nota spurningar úr sígilda spurningabankanum í prófum nýja prófakerfisins og öfugt.

Sígilda prófakerfinu mun verða lokað og nýja prófakerfið taka við. Eigandi Canvas hefur ekki kynnt hvenær það muni gerast þegar þetta er skrifað (4/9/26), en allri þróun kerfisins er hætt. 

Þessar leiðbeiningar eru ætlaðar kennurum sem eru að nota sígilda prófakerfið en vilja færa sig yfir í það nýja eða þeim sem vilja kynna sér surningabanka nýja prófakerfisins. 

Ef þú ert ekki viss um hvort notuð eru sígild próf eða ný próf í námskeiðinu er auðvelt að kanna það bæði með því að skoða prófin og spurningabankana.

Skoðaðu prófin

Farðu í próf í valmynd námskeiðsins. Þotutáknið fyrir framan heiti prófs segir til um hvort kerfið er notað:
sígilt-próf Útlína af þotu = Sígilt próf
nýtt próf Fyllt þotutákn = Nýtt próf
Kennarar sjá þennan mun á táknunum á prófasíðunni en ekki nemendur. Það er mögulegt að bæði kerfin séu notuð í sama námskeiði.

Skoðaðu spurningabanka sígildra prófa

Farðu í próf í valmynd námskeiðsins, veldu þriggja punkta valmyndina efst til hægri á síðunni og veldu umsjón með spurningabönkum. Þar geturðu séð hvaða sígildu spurningabankar eru til og opnað hvern banka til að skoða spurningarnar í honum. valmynd þrípunktur spurningabanki

Skoðaðu spurningabanka nýrra prófa

Farðu í spurningabankar í valmynd námskeiðsins. Þar eru spurningabankar nýja prófakerfisins. Bankar sem hefur verið deilt með námskeiðinu birtast sjálfgefið með síunni þetta námskeið. Þú getur einnig breytt síunni, t.d. í deilt með mér eða deilt með námskeiðum til að sjá aðra banka sem þú hefur aðgang að. Opnaðu banka með því að smella á heiti hans til að skoða spurningarnar. Ekki skiptir máli hvort tengillinn spurningabankar er hafður sýnilegur eða ekki. Nemendur hafa ekki aðgang að honum.

Heimildir:

Instructure – Canvas Icon Summary Instructure – How do I create a question bank in a course? Instructure – How do I manage item banks in New Quizzes?

Flestir kennarar afrita/flytja efni á milli námskeiða. Með því að merkja við valkostinn breyta efni í ný próf, þegar efni er flutt, má umbreyta sígildum spurningabanka í spurningabanka nýja prófakerfisins og sígildum prófum í ný próf.

  1. Opnaðu námskeiðið sem á að taka við spurningabankanum og prófum ef á að flytja á þau.
  2. Smelltu á flyttu inn núverandi efni, ofarlega hægra megin.
  3. Við veldu tegund efnis skaltu velja afrita Canvas-námskeið.
  4. Í reitnum fyrir neðan þarf að finna námskeiðið sem er með spurningabankann.
  5. Veldu annað hvort allt efni eða veldu tiltekið efni, eftir því hvað hentar. Ef eingöngu á að flytja spurningabanka og próf skaltu velja „tiltekið efni“.
    Athugaðu að ef valið er að flytja „allt efni“ koma tilkynningar hins námskeiðsins með.
  6. Merktu við breyta efni í ný próf undir valkostum.
    umbreyta efni fyrir nýja prófakerfið
  7. Smelltu á bæta við innflutningsbiðröð.
  8. Ef þú valdir að kostinn tiltekið efni þarftu nú að velja hvaða efni þú vilt flytja. Smelltu á hnappinn veldu efni.
    veldu efni
  9. Finndu spurningabanka í listanum og smelltu á örina til að opna.
    veldu efni valgluggi
  10. Merktu við spurningabankann eða spurningabankana sem á að flytja.
  11. Smelltu á veldu efni neðst til að hefja flutninginn.

Þegar flutningi er lokið skaltu fara í spurningabanka í valmynd námskeiðsins og athuga að hafa síuna þetta námskeið valda efst. Þar eiga nýju spurningabankarnir að birtast. Opnaðu bankana og athugaðu að allar spurningarnar hafi fylgt með.

Gott að vita

  • Hægt er að flytja einn eða marga spurningabanka í einu.
  • Spurningabankinn þarf ekki að vera notaður í prófi til að hægt sé að flytja hann.
  • Upprunalegi spurningabankinn í sígildum prófum helst óbreyttur í fyrra námskeiðinu.
  • Ef einnig á að færa sígilt próf yfir í ný próf má velja það með í sama innflutning.

Sjá nánar um flutning námskeiðsgagna á milli námskeiða.

Í myndbandinu er sýnt hvernig spurningabanki (og/eða próf) í sígilda prófakerfinu er fluttur/afritaður í annað námskeið og umbreytt um leið í banka sem tilheyrir nýja prófakerfinu.

MYNDBANDIÐ ER Í VINNSLU.

Í nýja prófakerfinu tilheyrir spurningabanki ekki ákveðnu námskeiði. Kennari getur því búið til banka í hvaða námskeiði sem er og síðan deilt honum með einu eða fleiri námskeiðum.

Spurningabanka deilt með námskeiði:

  1. Farðu í spurningabankar í valmynd námskeiðsins.
  2. Finndu bankann sem þú vilt deila (mundu að nota síurnar efst til að leita ef þarf) og smelltu á deila táknið.
  3. Veldu námskeiðið sem á að fá aðgang að bankanum.
  4. Veldu aðgang:
    Getur skoðað – kennarinn getur skoðað bankann og notað spurningarnar úr honum í prófum, en getur ekki breytt spurningunum eða bankanum.
    Getur breytt – kennarinn getur að auki breytt spurningum og bankanum sjálfum, bætt við spurningum og stjórnað deilingu bankans.
  5. Smelltu á bæta við.

Bankinn birtist þá undir Þetta námskeið í viðkomandi námskeiði.

Leiðbeiningar Instructure: How do I share an item bank in New Quizzes?

Þegar spurningabankar eru opnaðir er sían þetta námskeið sjálfgefin. Þegar þessi sía er valin birtast þeir spurningabankar sem hefur verið deilt með námskeiðinu.

Þegar nýr banki er stofnaður er hægt að velja strax að deila honum með námskeiðinu þar sem hann var stofnaður. Þá birtist hann í spurningabanka þess námskeiðs undir „þetta námskeið“.

Kennari getur einnig valið aðrar síur:

Deilt með mér – bankar sem kennarinn hefur búið til eða sem hefur verið deilt með honum eða námskeiði hans.
Deilt með námskeiðum – bankar sem hefur verið deilt með námskeiðum sem kennarinn er skráður í.
Stofnanabankar – bankar sem deilt er á vegum háskólans.

Leiðbeiningar Instructure: How do I manage item banks in New Quizzes?

Svona er farið að þegar deila á spurningabanka með öðrum kennara.

  1. Farðu í spurningabanka í valmynd námskeiðsins.
  2. Smelltu á deila táknið við bankann.
  3. Leitaðu að viðkomandi kennara.
  4. Veldu eftir því sem við á, getur skoðað eða getur breytt.
  5. Smelltu á bæta við.

Banki sem hefur verið deilt með kennara verður aðgengilegur kennaranum í námskeiðum þar sem hann er skráður sem kennari.

Getur skoðað – kennarinn getur skoðað bankann og notað spurningarnar úr honum í prófum, en getur ekki breytt spurningunum eða bankanum.
Getur breytt – kennarinn getur að auki breytt spurningum og bankanum sjálfum, bætt við spurningum og stjórnað deilingu bankans.

Leiðbeiningar Instructure: How do I share an item bank in New Quizzes?

Að skoða og stjórna spurningabönkum (e. Item Banks)