Skip to content
HÍ merki / logo

Canvas-Hjálp HÍ

  • Allir
  • Nemendur
    • Námskeiðsvefurinn
    • Tilkynningar
    • Verkefni
    • Umræður
    • Kannanir og próf
    • FeedbackFruits
    • Þátttakendur og hópar
    • Canvas Studio
    • Fjarfundir
    • Einkunnir og endurgjöf
    • Spurningar og svör
  • Kennarar
    • Grunnur námskeiðsvefs
    • Námsefnið
    • Upptökur og fjarfundir
    • Þátttaka og skil
    • Einkunnir og endurgjöf
    • Umsýsla námskeiðs
    • Algengar spurningar
  • Stjórnsýsla
    • Umhverfi og stoðkerfi
    • Námskeið og aðgerðir
    • Heimildir og hlutverk
  • English
  • Allir
  • Nemendur
    • Námskeiðsvefurinn
    • Tilkynningar
    • Verkefni
    • Umræður
    • Kannanir og próf
    • FeedbackFruits
    • Þátttakendur og hópar
    • Canvas Studio
    • Fjarfundir
    • Einkunnir og endurgjöf
    • Spurningar og svör
  • Kennarar
    • Grunnur námskeiðsvefs
    • Námsefnið
    • Upptökur og fjarfundir
    • Þátttaka og skil
    • Einkunnir og endurgjöf
    • Umsýsla námskeiðs
    • Algengar spurningar
  • Stjórnsýsla
    • Umhverfi og stoðkerfi
    • Námskeið og aðgerðir
    • Heimildir og hlutverk
  • English
Heim > Kennarar > Námsefnið > Flutningur námsgagna á milli námskeiða

Flutningur námsefnis á milli námskeiða

Markmið

Námskeið eignast nýjan tóman námskeiðsvef í hvert skipti sem það er kennt. Með því að flytja (afrita) efni á milli námskeiða getur kennari sparað tíma og endurnýtt efni.

Flutningur efnis er frekar einföld aðgerð. Hægt er að flytja allt efni námskeiðs eða flytja valin atriði.

Oftast birtast gögnin nánast samstundis á nýja námskeiðinu en það geta þó liðið einhverjar klukkustundir.

Eiginleikar

Athugið að þegar valinn er kosturinn að flytja öll gögn flytjast tilkynningar einnig með og koma fram undir tilkynningum nýja námskeiðsins. Tilgangurinn með því er að kennari geti endurnýtt tilkynningar, uppfært þær og stillt fram í tímann hvenær þær skuli birtast/sendast.

Ef kennari óskar ekki eftir að fá tilkynningar með yfir á nýja námskeiðið þarf að velja kostinn Velja tiltekið efni og merkja ekki við tilkynningar. Einnig er mögulegt að handvelja þær tilkynningar sem eiga að flytjast.

Mælt með

Algengast er að notuð sé aðferðin að flytja allt efni námskeiðs í einu eða hluta þess en það er líka praktískt að þekkja hvernig stök atriði eru send (afrituð) yfir á annað námskeið. Það er aðgerð sem tekur nánast enga stund.

Dæmi:

  • Síða sem búið er að eyða tíma og vinnu í að móta.
  • Eining/vika sem er gæti hentað sem grunnur í annað námskeið.
  • Verkefni sem á að vera nánast eins í öðru námskeiði.

Að flytja allt efni námskeiðs eða valið efni

Með þessari leið er hægt að flytja allt efni námskeiðs eða hluta þess. Með því að merkja við velja tiltekið efni er hægt að merkja við hvað á að flytja en sleppa öðru (t.d. tilkynningum).

Innflutningur – Unnið á námskeiðinu sem á að fá efnið

Leiðin: Heim > Flyttu inn núverandi efni

  1. Opnaðu námskeiðið sem á að fá gögnin (nýja námskeiðið).
  2. Smelltu á hnappinn flyttu inn núverandi efni, hægra megin á heimasíðunni.
flyttu inn núverandi efni
  1. Veldu afrita Canvas-námskeið við efnistegund (sjá mynd neðar).
  2. Veldu námskeiðið sem er með gögnin (eldra námskeiðið), þar sem stendur leita að námskeiði.
  3. Næst er hægt að velja um tvo kosti, flytja allt efnið í einu eða flytja einungis hluta efnisins.
    Með því að merkja við velja tiltekið efni fær kennari tækifæri til að velja nákvæmlega hvaða efni á að koma á nýja námskeiðið. Til dæmis er mögulegt að flytja efnið námskeiðs í áföngum sem getur hentað í efnismiklum námskeiðum, ef taka þarf til.
    Einnig er gefinn kostur á að láta Canvas stilla viðburði og skiladaga sjálfvirkt.
    Smelltu að lokum á flytja inn.
    ATH. Þegar allt efni námskeiðs er flutt koma með tilkynningar sem kennari hefur sent í námskeiði.
Flytja inn efni - afrita Canvas-námskeið
  1. Ef valið var að flytja allt efni birtist staðfesting, grænt merki Lokið, eftir flutning efnisins (sjá mynd fyrir neðan). Efnið ætti þar með að vera komið á viðeigandi staði kennsluvefsins, verkefni undir verkefni, skrár undir skrár o.s.frv.
Flutningi lokið

Ef valið var að velja tiltekið efni, þarf næst að smella á velja efni. Notandi getur þurft að bíða í smá stund þar til hnappurinn birtist, sérstaklega ef námskeið er efnismikið.

velja efni biðröð
  1. Því næst þarf að merkja við efni sem á að koma á nýja námskeiðið. Athugið að hægt er að  smella á örvar í glugganum og að opna svæðin til að velja t.d. stakar skrár eða verkefni.
velja efni til flutnings
  1. Smellið að lokum á flytja inn, neðst í glugganum.
    Canvas sýnir skilaboðin í biðröð, keyrir  og lokið,  þegar innflutningi efnisins er lokið. Aðgerðina er hægt að framkvæma eins oft og þörf krefur. Þegar efni er flutt inn á námskeið bætist það við en keyrir ekki yfir það sem fyrir er.

Athugið!

Innflutningur námsefnis getur tekið nokkurn tíma. Fylgstu með stöðunni og bíddu þar til innflutningi er lokið áður en þú reynir aftur. Annars er hætta á að efnið afritist tvisvar.
Ef sama efni er flutt inn aftur getur það einnig skrifað yfir fyrra afritið og breytingar sem gerðar hafa verið á því.

Að flytja stök atriði

Útflutningur – Unnið er á námskeiðinu sem er með efnið

Leiðin: Þrípunktur > Afrita yfir á

Í þessu tilviki þarf að byrja á að opna námskeiðið sem er með gögnin sem á að flytja/afrita.

  1. Smelltu á valmynd/þrípunkt atriðis sem þú vilt flytja og síðan á afrita yfir á (sbr. mynd). Hægt er t.d. að flytja stakar skrár úr skráarsafni námskeiðs, stök verkefni, síður eða einingar/vikur ásamt innihaldi.
    afrita yfir á
  2. Veldu námskeiðið sem á að fá gögnin. Nóg er að slá inn hluta af heiti námskeiðs til að fá það upp.
    afrita yfir á 2
  3. Smelltu á afrita. Gögnin lenda á sínum heimastað í nýja námskeiðinu s.s. síður í síðusafni, skrár í skráarsafni námskeiðs o.s.frv. Mögulegt er einnig að velja í hvaða einingu hins námskeiðsins atriðið á að birtast og hvar í röð atriða sem þar eru fyrir.
     
Um innflutning efnis á vef Instructure
forsíða

Kennslumiðstöð Háskóla Íslands

Setberg – Hús kennslunnar
Suðurgata 43 – gengið inn frá Sæmundargötu
102 Reykjavík

Opnunartímar

Almennur opnunartími Setbergs er milli kl. 9 og 15 alla virka daga.

Hafðu samband

Kennsla og tækni

HÍ Canvas
Kennari.hi.is
Setberg.hi.is
Tækniaðstoð UTS
Ugla.hi.is

Canvas Instructure

Canvas samfélagið
Efnisveita náms og kennslu

Canvas-Hjálp: Efnisyfirlit

Canvas-Hjálp HÍ

© Allur réttur áskilinn