Heim > Nemendur > Spurningar og svör

Aðstoð og algengar spurningar

Hjálp með Canvas

Nemendur fá tækniaðstoð vegna tölvumála sem tengjast námi við skólann hjá Tölvuþjónustu Upplýsingatæknisviðs. Netfang: hjalp@hi.is eða s. 525 4222. Sjá nánar um tækniaðstoð og þjónustuborð á vef þjónustumiðu.

Í beiðni um aðstoð er mikilvægt að lýsa vandamáli vel og láta fylgja allar viðeigandi upplýsingar, s.s. númer og nafn námskeiðs, heiti verkefnis eða prófs ef við á o.s.frv. Einnig er praktískt að láta vefslóðir fylgja, t.d. á verkefni eða annað sem við á. Skýr lýsing á vandamáli, ásamt nauðsynlegum upplýsingum, gerir aðstoðarfólki kleift að bregðast við beiðninni þinni fyrr.

Hjálparbeiðnir sem krefjast sérhæfðari þekkingar í Canvas eru sendar áfram á Canvas-þjónustu fræðasviðs eða á Canvas-teymi Kennslusviðs.

Svör við algengum spurningum nemenda

Þegar þú skráir þig inn í Uglu (ugla.hi.is) skráist þú um leið inn í Canvas. Í Uglu smellir þú á námskeiðið þitt á forsíðunni og námskeiðið opnast í Canvas. Þú getur séð í addressulínu vafrans hvort þú ert í Canvas eða Uglu. Ef slóðin byrjar á haskoliislands.instructure.com þá ertu í Canvas.

Námskeiðin þín birtast yfirleitt á skjáborðinu í Canvas. Ef námskeið vantar gæti verið að kennari hafi ekki enn birt það nemendum, námskeiðið ekki byrjað, eða skráningin þín enn verið að uppfærast.

Opnaðu námskeið í aðalvalmyndinni og veldu þar öll námskeið. Námskeið sem birtast ekki á skjáborðinu má oft finna þar, þar á meðal námskeið sem er lokið.

 

Opnaðu verkefnið í námskeiðinu þínu og fylgdu skilaleiðbeiningunum sem birtast þar. Það fer eftir því hvernig verkefnið er sett upp hvort þú þarft að hlaða upp skrá, skrifa beint inn í Canvas, skila vefslóð, glósa í skjal eða taka upp/hlaða upp hljóði eða myndskeiði. Kennari ákveður hvaða skilaleiðir eru í boði.

Sjá nánar: Verkefni.

Eftir að þú hefur hlaðið upp eða bætt við úrlausninni skaltu ganga úr skugga um að þú smellir líka á hnappinn skila verkefni (neðst hægra megin í tölvu). Í sumum verkefnum getur skráin þín eða textinn fyrst vistast sem uppkast og nemendur rugla því stundum saman við endanleg skil. Eftir endanleg skil birtir Canvas yfirleitt staðfestingu á skilum og upplýsingar um skilin, til dæmis skilatíma, stöðu skilanna og þá skrá, texta, slóð eða myndskeið sem þú skilaðir.

Í hópverkefni fara skil fram í gegnum verkefnið í námskeiðinu, ekki á hópasvæðinu. Yfirleitt skilar einn hópmeðlimur fyrir hönd hópsins, en það fer þó eftir því hvernig kennari setti verkefnið upp. Áður en skilað er þarf að ganga úr skugga um að hópmeðlimi séu allir skráðir í rétta hópinn. Ef nemendur skrá sig ekki í hópinn fyrr en eftir að verkefni hefur verið skilað getur það valdið vandamálum varðandi endurgjöf, einkunnagjöf og aðgang að skilunum.

Til að skrá sig í hóp er farið í fólk í valmynd námskeiðsins og þar í flipann hópa. Smella þarf á taka þátt við hóp. Hægt er að skrá sig úr hópi og skipta um hóp á meðan sjálfsskráning hópanna er virk. Þú getur líka opnað hópa í gegnum hópahlekkinn í aðalvalmynd Canvas.

Algeng ástæða er sú að efnið sé í viku/námshluta sem er óbirtur. Sama efni er stundum á fleiri en einum stað á námskeiðsvefnum. Ef efnið sem þú reynir að opna er einnig staðsett í viku/námshluta sem hefur ekki verið birtur nemendum (þó að búið sé að birta efnið sjálft) neitar Canvas að opna og sýnir skilaboð um að efnið sé hluti af óbirtri einingu og ekki tiltækt. Þetta getur líka gerst ef aðgangur að efninu er miðast við tiltekna dagsetningu, eða ef um er að ræða vafra- eða aðgangsvandamál. Ef þú sérð þessi skilaboð skaltu fyrst hafa samband við kennarann.

óbirt eining skilaboð

Próf getur lokast vegna þess að próftökutíminn rann út eða aðgangur að prófinu lokaðist. Þegar þetta gerist sendir Canvas oftast sjálfkrafa inn prófúrlausnina þína, svo að svör nemanda tapast ekki. Rétt er að hafa samband strax við kennara.

Kennarar nota yfirleitt Panopto eða Canvas Studio til að deila upptökum með nemendum í Canvas. Ef þú getur ekki spilað upptöku gæti það verið vegna þess að tengillinn á myndbandið kemur úr eldra námskeiði og upptakan sjálf var ekki afrituð yfir í nýja námskeiðið. Orsökin getur líka verið vafri, aðgangur, innskráning, vafrakökur eða nettenging. Prófaðu fyrst að endurhlaða síðuna, nota annan vafra og hreinsa skyndiminni og vafrakökur í vafranum. Ef upptakan spilast ekki eftir það skaltu hafa samband við kennara.

Opnaðu námskeiðið þitt og veldu einkunnir í valmynd námskeiðsins. Þar sérðu einkunnir, stöðu og tiltæka endurgjöf. Til að sjá ítarlegri endurgjöf skaltu smella á heiti verkefnisins og á skoða endurgjöf. Endurgjöf getur falið í sér skriflegar athugasemdir, niðurstöður matskvarða, glósur eða merkingar í skjali, viðhengi eða hljóð- og myndathugasemdir.

Já. Hægt er að nota Canvas í farsíma með Canvas Student-appinu. Canvas er sniðið að notkun í farsímum, þó að sum atriði sé eingöngu hægt að opna í vafra. Nánari upplýsingar má finna í leiðbeiningum um Canvas-appið.

Settu upp Canvas Student-appið, leitaðu að Háskóla Íslands og skráðu þig inn með HÍ notandaauðkenni. Canvas styður einnig innskráningu með QR-kóða ef þú ert þegar skráð/ur inn í vefútgáfunni.

 

Nei, ekki alltaf. Mörg algeng verkefni nemenda virka í appinu, en sumt er takmarkað eða opnast einungis í vafra. Canvas bendir á að sumar síður og verkfæri séu ekki að fullu studd í appinu.

Canvas Studio upptökuforritið er aðgengilegt öllum notendum og má nota til að taka upp, safna, flokka eða skila hljóð- og myndefni.

Þú getur einnig tekið upp myndskeið eða hljóð þar sem Canvas ritillinn er notaður, til dæmis í verkefnum, umræðum, síðum og sumum prófum. Í ritlinum er valið hlaða/taka upp margmiðlunarefni  til að taka upp eða hlaða upp efninu. 

Ef málið snýst um efni námskeiðs, skilafresti eða stillingar verkefna skaltu hafa samband við kennara námskeiðs. Ef um tæknileg vandamál tengd náminu er að ræða skaltu hafa samband við tölvuþjónustu Upplýsingatæknisviðs. Undir hjálp í aðalvalmynd Canvas er einnig hægt að senda skilaboð til kennara eða láta vita af villum.

Notaðu uppfærðan vafra sem Canvas styður. Ef eitthvað virkar ekki rétt skaltu prófa annan studdan vafra, til dæmis Chrome eða Firefox. Val á vafra getur haft áhrif á innskráningu, miðla, verkefnaskil og aðra virkni í Canvas.