Tímastillingar í Canvas prófum
Tímarammi - Tímamörk - Aukatími
Huga þarf að þremur stillingum vegna tímasetninga prófa. Stillingarnar spila saman og áríðandi er að þær séu rétt upp settar áður en próftaka hefst.
- Tímarammi prófs segir til um hvenær próf er aðgengilegt nemendum.
- Tímamörk tilgreina þann tíma sem hver nemandi fær í sjálfa próftökuna frá því nemandinn byrjar og þar til hann lýkur próftöku.
- Aukatími er gefinn ef nemandi þarf lengri próftíma en tilgreint er í tímamörkum.
Ef ekki er rétt farið að getur það m.a. haft þær afleiðingar að próf nemanda lokist áður en tíminn er uppurinn. Í Canvas er nánast ekkert svigrúm til að leiðrétta tímastillingar eftir að nemandi byrjar próftöku. Í Canvas eru tvö prófakerfi sígilda og nýja prófakerfið. Leiðbeiningarnar hér fyrir neðan eiga við bæði kerfin.
*Athugið að í prófakerfinu Inspera er hægt að framlengja tíma prófs eftir nemendur hefja próftöku.
- Tímarammi
- Tímamörk
- Aukatími
Tímaramminn ákvarðar hvenær er mögulegt að taka próf. Hann er skilgreindur út frá Tiltækt frá og Þar til dagsetningum og tíma (sjá myndir í dæmum). Tímaramminn er oft/yfirleitt hafður eitthvað lengri en eiginlegur próftími (tímamörkin). Tímaramminn þarf að gera ráð fyrir nemendum með sérúrræði og nemendum sem byrja prófið seinna en áætlað er. Stillingar tímarammans eru eins í báðum prófakerfum.
Tiltækt frá tími prófs skilgreinir hvenær nemandi getur opnað prófið (séð spurningarnar). Áríðandi er að skilgreina Tiltækt frá tíma prófs um leið og próf er sett upp (a.m.k. áður en spurningar eru settar í prófið).
Ef hann er ekki skilgreindur geta nemendur opnað prófið og séð spurningarnar um leið og fyrsta spurningin hefur verið sett í prófið.
Þar til tími prófs lokar prófi allra nemenda, óháð því hve langan tíma eða stuttan nemandi hefur notað í próftökuna og óháð því hvort nemandi er með aukatíma. Eftir þennan tíma geta nemendur ekki svarað spurningum. Til að nemandi geti fullnýtt tímamörkin sín er því nauðsynlegt að nemandi sem hefur t.d. 2 klst. í tímamörk hefji próftöku eigi síðar en tveimur klukkustundum fyrir Þar til tímann. Nemandi sem hefur fengið 30 mínútur aukreitis þarf að byrja prófið 2 og 1/2 klukkustund fyrir Þar til tímann. Þegar Þar til tíminn er skilgreindur er áríðandi að taka tillit til þess nemanda sem er með lengsta próftímann (nemanda með sérúrræði). Þar til tími og skilafrestur er hafður sá sami í prófum.
Dæmi 1
Fyrirhugaður próftími er 2 klst. en einhverjir nemendur eru með +30 mínútur til viðbótar. Tími prófs þarf þá að vera að lágmarki 2 klst. og 30 mín. Með því að hafa tíma prófs eylítið lengri gefur kennari nemendum svigrúm sem hefja próf aðeins of seint færi á að fullnýta tímamörkin sín. Tími prófs er því oft hafður um fimm til tíu mínútum lengri en próftími þess nemanda sem fær lengstan tíma.

Dæmi 2
Fyrirhugaður próftími er tvær klukkustundir en prófið er haft aðgengilegt til að taka það í tvo og hálfan sólarhring. Nemendur geta tekið prófið hvenær sem er á þeim tíma. Tímamörk eru stillt í 2 klst. (fyrir almennan nemanda) en tíminn á milli Tiltækt frá og Þar til nær yfir tvo og hálfan sólarhring (sjá mynd). Ef nemandi vill fullnýta tímamörkin sín (2 klst.) þarf hann að hefja próftöku í síðasta lagi kl. 18:00 þann 1. apríl.

Tímamörk eru sá tími sem nemandi fær í próftökuna sjálfa, þ.e. frá því að nemandinn opnar prófið (sér spurningarnar) þar til hann þarf að skila prófúrlausn sinni inn í Canvas. Ef nemandi skilar ekki sjálfur, skilar Canvas fyrir hann um leið og tímamörkin eru uppurin.
Í próftökunni kemur fram prófklukka sem telur niður tímann út frá tímamörkunum. Séu tímamörk ekki stillt kemur prófklukkan ekki fram.
Tímamörk á að stilla miðað við hinn almenna nemanda (ekki nemanda með sérúrræði) og þau eru yfirleitt höfð eitthvað styttri en tímarammi prófs.
Sígild próf
Í sígildu prófi eru tímamörkin stillt í uppsetningu prófsins.

Ný próf
Í nýja prófakerfinu er prófið sett upp, farið í byggja og í flipann stillingar efst á skjánum. Merkt er við tímamörk og lengd tíma valin fyrir neðan. Stillingar vistast sjálfvirkt.

Í tímaramma prófs (Tiltækt frá tími og Þar til tími) er áríðandi að gera ráð fyrir aukatíma nemenda með sérúrræði.
Í Canvas þarf kennari sjálfur að stilla lengri próftíma nemenda með sérúrræði. Kennari fær upplýsingar hjá Náms- og starfsráðgjöf um nöfn nemenda og hlutfallslegan aukatíma.
Nemendur með sérúrræði eiga oft rétt á lengri próftíma. Nemandi sem þarf sértæk úrræði í námi skal leita til Náms- og starfsráðgjafar og „Samkomulag um sértæk úrræði skal að öllu jöfnu liggja fyrir áður en námið hefst og ekki síðar en [1. október vegna haustmisseris og 1. mars vegna vormisseris.]1„
Reglur um sértæk úrræði í námi
*Athugið að prófakerfið Inspera sækir upplýsingar um lengdan próftíma nemanda sjálfkrafa úr Uglu og því þarf kennari ekki að huga að þessu atriði í Inspera prófum.
Ný próf
Ný próf bjóða upp á nokkrar leiðir til að stilla aukatíma nemanda. Annars vegar að skilgreina lengri próftíma í öllum prófum nemanda og hins vegar einungis í prófinu sem verið er að vinna í.
Athugið að í skilgreindum tíma prófs (Tiltækt frá og Þar til) þarf að gera ráð fyrir aukatíma nemenda.
Lengri próftími nemanda í öllum prófum námskeiðs
Með þessari leið er aukatími stilltur í einu prófi en stillingin fer um leið á öll próf (af nýju gerðinni) sem hafa verið stofnuð í námskeiði eða munu verða stofnuð þaðan í frá.
- Opnið prófið og smellið á Stjórna í valmyndinni efst á síðunni.
- Smellið á blýantstáknið í dálkinum Aðlögun, aftan við nafn nemanda.

- Í glugganum sem opnast er hægt að velja einn af þremur möguleikum:
- Gefa aukatíma – Hér er nemanda gefinn sami aukatími í öllum nýjum prófum, t.d. 15 mínútur aukalega í hverju prófi.
- Fjarlægja tímatakmörk (ótakmarkað) – N emanda er gefinn ótakmarkaður próftími. Athugið, að stillingin er háð því að Tími prófs sé ótakmarkaður, þ.e.a.s. enginn Þar til tími skilgreindur.
- Tímatakmörk margfaldari – Hér er skráð tölugildi (margfaldari) til að margfalda með almenn tímamörk prófs. Sem dæmi gæfi tölugildið 1.25 nemanda 25% lengri próftíma í öllum prófum af nýju gerðinni.

Lengri próftími nemanda í stöku prófi
Valkostirnir sem eru í boði gilda einungis í því prófi sem verið er að vinna í. Hér er einnig mögulegt að gefa nemanda viðbótartilraun til að taka próf s.s. ef nemandi lauk/lokaði óvart prófinu á meðan á próftöku stóð eða lenti í tæknilegu vandamáli sem gerði fyrri próftilraun ógilda.
Athugið að í skilgreindum tíma prófs (Tiltækt frá og Þar til) þarf að gera ráð fyrir aukatíma nemenda.
- Opnið prófið og smellið á Stjórna í valmyndinni efst á síðunni.
- Smellið á Stjórna aftast í línunni við nafn nemanda. Panell opnast hægra megin (sjá mynd). Hægt er að gefa nemanda aukatíma eða fjarlægja tímatakmörk í prófinu. Valkostirnir eru þó háðir því að skilgreindur tími prófs geri ráð fyrir þessum framlengda tíma.

Sígilt próf
Nauðsynlegt er að birta sígilt próf. Fyrr er ekki mögulegt að gefa nemanda aukatíma. Athugið að áður en próf er birt þarf að vera búið að tilgreina Tiltækt frá tíma prófsins. Að öðrum kosti geta nemendur opnað prófið um leið og það er birt.
Til að gefa nemanda aukatíma í sígildu prófi þarf að gera eftirfarandi:
- Opnið prófið.
- Smellið á Stjórna þessu prófi (hægra megin).

- Smellið á blýantstáknið aftan við nafn nemanda og skráið aukatímann í reitinn (ath. ekki heildartíma). Hér er líka hægt að gefa nemanda aðra tilraun ef nemandi þarf einhverra hluta vegna að endurtaka próf.

- Vistið.





