Upptaka flutt á milli námskeiða
Hér er útskýrt hvernig upptaka er færð úr einu námskeiði í annað. Einnig er hægt að afrita upptöku og flytja sem hentar ef upptaka á að birtast í tveimur námskeiðum eða fleiri.
Athugaðu að til að hægt sé að flytja upptöku í námskeið þarf Panopto að vera virkjað í námskeiðinu sem á að fá upptökuna. Ef þú sérð Panopto Video hlekkinn vinstra megin í valmynd námskeiðsins er Panopto virkjað ef ekki þarftu að virkja það.
Leiðin: Námskeiðsvefur > Stillingar > Leiðarstýring
- Opnaðu námskeiðið í Canvas.
- Smelltu á stillingar neðst í valmynd námskeiðsins.
- Veldu flipann leiðarstýringu, ofarlega fyrir miðju.
- Finndu Panopto video í neðri listanum og dragðu í efri listann eða notaðu þrípunktinn aftan við, veldu heimila. Síðan geturðu dregið hlekkinn þar sem þú vilt hafa hann í röðinni.
- Vistaðu neðst á síðunni.
Panopto Video hlekkurinn ætti nú að sjást í valmynd námskeiðsins.
Upptaka færð úr einu námskeiði í annað eða afrituð og færð
Leiðin: Námskeið í Canvas > Open in Panopto
- Opnaðu námskeiðið þar sem upptakan er núna, í Canvas.
- Smelltu á Panopto video í valmynd námskeiðs. Upptökur námskeiðs birtast.

- Smelltu á táknið Open in Panopto í efra hægra horni (sjá mynd). Panopto vefþjónninn opnast í nýjum glugga.

Finndu upptökuna eða upptökurnar sem á að flytja og merktu í litla reitinn í efra vinstra horni hverrar upptöku. Til að merkja við allar upptökur á síðunni er hægt að nota reitinn fyrir ofan upptökurnar. Aðgerðahnappar birtast fyrir ofan upptökurnar um leið og merkt hefur við upptöku. Þegar músarbendillinn er færður yfir táknin sést hvaða aðgerð þau standa fyrir.
- Smelltu annað hvort á move eða copy hnappinn. Move til að færa upptökuna í annað námskeið en copy til að afrita upptöku og flytja afritið í annað námskeið. Með afritun verður upptakan aðgengileg á báðum námskeiðum.

- Finndu námskeiðið sem á að fá upptökuna og smelltu á það. Hægt er að nota leitina efst í glugganum og slá inn heiti námskeiðsins eða finna námskeiðið í Default Folder neðst í listanum.

- Smelltu á move (eða copy) og lokaðu glugganum.
Þegar upptaka er flutt færist hún samstundis á nýja námskeiðsvefinn en þegar upptaka er afrituð geta liðið 20-30 mínútur þar til Panopto hefur lokið við að afrita upptökuna og flytja.




