Panopto - Upptaka sett í einingu eða á síðu
Upptökur sem teknar eru upp með í Panopto á námskeiðsvefnum í Canvas birtast undir tenglinum Panopto Video í valmynd námskeiðs. Þar geta nemendur séð allar upptökur námskeiðs á einum stað.
Einnig er hægt að birta upptöku á viðeigandi stað í efni námskeiðsvefsins svo sem í einingu sem stendur fyrir tiltekna viku eða á sérstakri síðu. Það getur verið skilvirkara og notendavænna. Báðar leiðir eru útskýrðar fyrir neðan.
Upptöku bætt í einingu
- Smelltu á + tákn einingar.

- Veldu Ytra tæki í línunni efst í glugganum.

- Smelltu á Panopto í listanum yfir verkfæri.
- Merktu við upptökuna og smelltu á Insert.

- Smelltu á Bæta við atriði.

- Birtu upptökuna nemendum.

Upptöku bætt á síðu
Þegar upptaka er sett á síðu skapast tækifæri til að setja þar einnig útskýringar eða annað tengt efni.
Síðan stofnuð
- Smelltu á + tákn einingar.

- Veldu Síðu í línunni efst í glugganum.

- Smelltu á Búa til síðu efst í glugganum fyrir neðan.
- Gefðu síðunni lýsandi heiti í línunni fyrir síðuheiti.
- Smelltu á Bæta við atriði.
Upptaka sett inn á síðuna
- Smelltu á síðuna til að opna hana.
- Smelltu á Breyta í efra hægra horni, ritillinn opnast.
- Smelltu á rafmagnsklónna og Sjá allt. Gluggi með verkfærum opnast.
- Smelltu á Panopto í listanum.

Ef rafmagnsklóin sést ekki þarf að smella á þrípunktinn lengst til hægri. Hér eftir ætti græna Panopto táknið að koma fram í ritlinum.
- Merktu við upptökuna og smelltu á Insert. Upptakan birtist í ritlinum.
- Skrollaðu niður og vistaðu síðuna.







