Panopto sett upp á eigin tölvu
Með því að setja Panopto upp á eigin tölvu geturðu tekið upp á skrifstofunni eða heima.
Leiðin til að ná í Panopto forritið:
Námskeiðsvefurinn > Panopto Video > Create > Record a new session > Download Panopto
Einnig er hægt að ná í forritið á Panopto vefþjóninum, á slóðinni rec.hi.is. Velja þarf Háskóli Íslands Canvas í fellilistanum fyrir ofan innskráningarhnappinn.
Fyrir neðan er útskýrt hvernig náð er í Panopto forritið í gegnum Canvas.
- Smelltu á Panopto video tengilinn í leiðarstýringu (valmynd) námskeiðs í Canvas. Umhverfi Panopto opnast. Ef Panopto Video er ekki í leiðarstýringu þarftu að bæta tenglinum við fyrst, sjá Stillingar námskeiðs og leiðarstýring.

- Smelltu á Create og Record a new session.

- Smelltu á hnappinn Download Panopto. Forritið hleðst niður í tölvu.Ef þú ert með Makka, smelltu þá á Click here for other download options og veldu macOS.
Ef Panopto hefur þegar verið sett upp á tölvuna er hægt að smella Open Panopto Recorder í litlum glugga til að hefja upptöku. - Opnið skrána og setjið upp Panopto.


