Heim > Kennarar > Grunnur námskeiðsvefs > Stillingar námskeiðs og leiðarstýring

Stillingar námskeiðs og leiðarstýring

Í stillingum námskeiðs (neðst vinstra megin) er m.a. hægt að velja:

  • hvaða tenglar eiga að vera í leiðarstýringu námskeiðsvefs, þ.e. valmyndinni vinstra megin.
  • á hvaða tungumáli vefurinn á að birtast.
  • hver einkennismynd námskeiðs á að vera, litla myndin sem sést á skjáborðinu í Canvas.
  • að opna fyrir ýmis konar möguleika námskeiðsvefsins, undir valkostum þátta, t.d. hafa snjall-leit á vefnum, virkja nýtt viðmót matskvarða eða annað sem hefur nýlega bæst við Canvas en er ekki sjálfvalið virkt.


Tengillinn tilkynningar verður sjálfkrafa sýnilegur nemendum eftir að kennari hefur sent fyrstu tilkynninguna. Mundu að áður verður að vera búið að birta námskeiðsvefinn.

Ráð um leiðarstýringu

Valmynd námskeiðs eða leiðarstýring vinstra megin veitir aðgengi að mismunandi hlutum námskeiðsvefsins. Hér gildir sú regla að hafa eingöngu þá tengla sýnilega nemendum sem notaðir verða í námskeiðinu. Óþarfa tenglar í valmyndinni geta valdið ruglingi eða misskilningi á meðal nemenda og tenglar sem vantar valda skertu aðgengi.

Notaðu hnappinn skoða sem nemandi í efra hægra horni til að sannreyna hvaða tengla nemendur sjá.

ATH. Tengillinn tilkynningar er ósýnilegur nemendum en verður sjálfkrafa sýnilegur eftir að fyrsta tilkynning hefur verið send.

Það getur verið mismunandi á milli námskeiða hvaða tengla hentar að hafa í leiðarstýringu. Eftirfarandi tenglar eru algengastir: Heim, tilkynningar, kennsluáætlun, verkefni, einkunnir og fólk. Tengilinn umræður þarf að virkja ef umræður eru notaðar í námskeiði og Panopto video ef forritið Panopto er notað fyrir upptökur námskeiðs.

  • Mundu að skoða námskeiðsvefinn sem nemandi til að sannreyna hvaða tengla nemendur sjá í leiðarstýringu.
Leiðarstýring
Leiðarstýring frá sjónarhorni nemanda

Tungumál námskeiðsvefs

Sjálfvalin tungumálastilling námskeiðs er: „Ekki skilgreint (notandastillt, sjálfgilt fyrir íslensku)“. Þetta þýðir að námskeiðsvefur birtist notendum á íslensku nema notandi hafi valið í eigin stillingum að láta Canvas birtast á öðru tungumáli. Ef nemandi velur í eigin stillingum að láta Canvas birtast sér á dönsku mun námskeiðsvefur með þessari stillingu birtast á því máli (hér er ekki átt við efni sem kennari setur upp heldur einungis texti sem tilheyrir kerfinu s.s. leiðarstýring og annað).

Námskeið á ávallt að birtast á íslensku eða öðru tilteknu máli
Ef námskeiðsvefur á ávallt að birtast öllum á tilteknu tungumáli þarf að velja það mál í stillingunum. Dæmi: Ef verið er að kenna íslensku og kennara finnst æskilegt að námskeiðið birtist ávallt á íslensku þarf að velja „íslenska“ sem tungumál og muna að vista neðst á stillingarsíðunni (uppfæra námskeiðsupplýsingar).

Sjálfgefið tungumál
Sjálfvalin tungumálastilling: Námskeið birtist á íslensku nema notandi hafi valið annað tungumál í persónulegum stillingum.
Tungumál íslenska
Til að námskeiðsvefur birtist á íslensku óháð persónulegum stillingum notanda þarf að velja íslensku í stillingum námskeiðs.