Heimasíða námskeiðs
Hlutverk heimasíðunnar
Heimasíðan er fyrsti viðkomustaður nemenda á námskeiðsvefnum. Sjálfgefin heimasíða við HÍ sýnir einingar námskeiðsins og hentar flestum námskeiðum vel. Þar fá nemendur skýrt yfirlit yfir skipulag námskeiðsins, námsefnið og næstu skref.
Canvas býður einnig upp á fjórar aðrar gerðir heimasíðna. Kennari getur valið aðra gerð ef hún hentar uppbyggingu námskeiðsins og þörfum nemenda betur.
1. Hvaða heimasíða hentar námskeiðinu?
Heimasíða
Hentar þegar
Sjálfgefin heimasíða
(einingar/námsefni)
Námskeiðið er skipulagt eftir vikum eða námshlutum. Nemendur sjá námsefni og verkefni í þeirri röð sem ætlast er til að þeir vinni þau.
Sérhönnuð heimasíða
Kennari vill bjóða nemendur velkomna, kynna námskeiðið eða veita skýra inngönguleið í það sem nemendur nota mest.
Kennsluáætlun
Kennsluáætlunin og tímasett verkefni eða viðburðir eiga að vera í forgrunni. Neðst á síðunni birtist sjálfvirkt yfirlit yfir tímasett atriði námskeiðsins. Stundum er kennsluáætlunin aðeins notuð sem heimasíða í upphafi námskeiðs t.d. fyrstu 1-2 vikurnar.
Verkefnalisti
Námskeiðið byggist að mestu á verkefnum. Nemendur sjá verkefnin flokkuð eftir því hvort þau eru fram undan, liðin eða án skiladags. Kennarar sjá verkefnin eftir verkefnaflokkum.
Virknistreymi námskeiðs
Nýleg virkni námskeiðsins á að vera mest áberandi, svo sem tilkynningar, umræður og verkefni. Það sem birtist fer eftir hlutverki og þátttöku hvers notanda.
2. Velja gerð heimasíðu
- Opnaðu námskeiðið og veldu heim í valmynd námskeiðsins.
- Veldu velja heimasíðu hægra megin. Valgluggi opnast.

- Veldu þá gerð heimasíðu sem þú vilt nota.
- Veldu vista.
Heimasíðan breytist fyrir alla notendur námskeiðsins.
Sérhönnuð heimasíða
Áður en hægt er að velja sérhannaða síðu sem heimasíðu:
- Búðu síðuna til í síðusafni námskeiðsins (síður í valmynd).
- Birtu síðuna í síðusafninu.
- Farðu í þrípunktinn við síðuna og veldu nota sem forsíðu.

- Farðu á heim.
- Smelltu á velja heimasíðu hægra megin.
- Veldu forsíða síðna og vistaðu.
Ef ekki hefur verið búið að skilgreina birta síðu sem forsíðu er ekki hægt að velja forsíða síðna í valglugganum.
3. Þegar önnur heimasíða er valin
Ef heimasíðan sýnir ekki einingar námskeiðsins þarf að tryggja að nemendur eigi greiða leið að námsefninu.
- Hafðu tengilinn námsefni sýnilegan í valmynd námskeiðsins (sjá nánar um leiðarstýringu).
- Settu greinilegan tengil á námsefnið á sérhannaða heimasíðu, ef slík síða er notuð.
- Prófaðu námskeiðið í nemandasýn.
- Athugaðu einnig hvernig námskeiðið birtist í Canvas nemenda-appinu.
- Gættu þess að efni sem vísað er á á heimasíðunni sé birt nemendum, skoðaðu það í nemandasýn.
Valmynd námskeiðsins vinstra megin og aðgerðir kennara hægra megin breytast ekki þótt önnur heimasíða sé valin.
Athugaðu: Nemendur geta komið inn á námskeiðsvefinn eftir ýmsum leiðum, til dæmis úr dagatali, tilkynningu eða verkefnalista. Mikilvægt er að skipulag námskeiðsins sé skýrt þótt þeir komi ekki alltaf inn á heimasíðuna.
4. Góð sérhönnuð heimasíða
Sérhönnuð heimasíða getur veitt nemendum hlýlegri og skýrari leið inn í námskeiðið. Hún hentar meðal annars þegar kennari vill kynna námskeiðið, beina nemendum að mikilvægum upplýsingum eða sýna hvað er fram undan.
Hafðu heimasíðuna einfalda og settu aðeins inn efni sem hjálpar nemendum að byrja eða finna það sem þeir þurfa oftast.
- stutt velkomin skilaboð;
- stutta kynningu á námskeiðinu eða kynningarmyndskeið;
- greinilegan tengil á námsefnið;
- upplýsingar um hvað nemendur eiga að gera fyrst;
- tengla á atriði sem eru mikið notuð;
- upplýsingar um kennara og viðtalstíma, ef þær eru ekki í kennsluáætlun;
- tengla á mikilvæg atriði í kennsluáætlun, svo sem hæfniviðmið, verkefni og námsmat.
Ef efni heimasíðunnar er uppfært reglulega er gott að vekja athygli á því sem er á döfinni. Haltu þó staðsetningu helstu atriða óbreyttri svo nemendur þurfi ekki sífellt að læra aftur á síðuna.
- Notaðu skýrar fyrirsagnir og stuttan texta.
- Hafðu útlitið einfalt og samræmt.
- Notaðu fáa og lýsandi tengla.
- Notaðu myndir, tákn og myndskeið aðeins þegar þau hafa skýran tilgang.
- Forðastu óþarfa skraut, of marga liti og stórar myndir sem hægja á síðunni.
- Notaðu fyrirsagnastíla í réttri röð.
- Skrifaðu lýsandi tenglatexta í stað orðalags eins og „smelltu hér“.
- Settu alt-texta við myndir sem miðla upplýsingum.
- Hafðu nægan litamun milli texta og bakgrunns.
- Notaðu lista þegar þeir auðvelda yfirsýn.
- Notaðu ekki töflur til að móta útlit síðunnar.
- Athugaðu síðuna með aðgengishnappi ritilsins áður en hún er birt.




