Heim > Kennarar > Grunnur námskeiðsvefs > Nemandasýn og prófunarnemandi

Nemandasýn, prófunarnemandi og birting vefs

Nemandasýn

Tilgangur

Skoða sem nemandi gerir kennara kleift að sjá hvernig námskeiðið birtist nemendum og kanna hvort nemendur geti opnað og notað efni á borð við verkefni, próf, umræður og skrár. Í nemandasýn fer kennari inn í námskeiðið sem prófunarnemandi. Þá er hægt að skila verkefnum, taka próf og skoða námskeiðið frá sjónarhorni nemanda. Eftir að farið er úr nemandasýn getur kennari gefið prófunarnemandanum einkunn og umsögn.

Takmarkanir

Nemandasýn sýnir námskeiðið frá sjónarhorni almenns nemanda. Óbirt atriði og efni sem er aðeins aðgengilegt tilteknum nemendum birtist því ekki þar. Prófunarnemanda er heldur ekki hægt að setja í hópa og því er ekki hægt að prófa hópa með nemandasýn.

Góð vinnubrögð

Gott er að fara reglulega yfir námskeiðið í nemandasýn, sérstaklega eftir að nýju efni hefur verið bætt við og áður en kemur að skilafrestum. Þannig er auðveldara að finna algeng vandamál, svo sem óbirt verkefni, próf eða skrár, eða stillingar sem koma í veg fyrir að nemendur hafi aðgang að efni.

Skoða sem nemandi

  1. Smelltu á hnappinn Skoða sem nemandi í efra hægra horni. Canvas sýnir bleikan ramma utan um skjámyndina.
    Skoða sem nemandi
  2. Til að fara úr nemandasýn þarf að smella á Fara úr nemandasýn, í neðra hægra horni (ekki dugar að bakka í vafranum).
    Fara úr nemandasýn

Gögnum prófunarnemanda eytt

Til að hreinsa út gögn sem tengjast prófunarnemanda (eru sett inn í nemandasýn) s.s. verkefni eða einkunn þarf að fara í Skoða sem nemandi og smella á Endurstilla nemanda í neðra hægra horni.

Gögn prófunarnemandans hafa ekki áhrif á tölfræði námskeiðs.

Fara úr nemandasýn