Heim > Kennarar > Grunnur námskeiðsvefs > Skipulag og bygging námskeiðsvefs

Skipulag og bygging námskeiðsvefs

Skipulag efnis í einingum

Á sjálfvalinni heimasíðu námskeiðs er efni námskeiðs sett upp í sk. einingar. Eining er nokkurs konar ílát og getur staðið fyrir viku, námshluta eða annað sem hentar fyrirkomulagi kennslu eða skipulagi námskeiðs. Námsefni, verkefni, tenglar, skrár eða fyrirlestrar eru sett í viðeigandi einingar.

Skýr uppbygging eininga hjálpar nemendum að finna efni fljótt, átta sig á hvað á að gera og fylgjast með framvindu námskeiðsins.

Góð vinnubrögð

  • Uppbygging: Notaðu skýra og samræmda uppbyggingu, til dæmis með því að skipuleggja efni eftir vikum eða viðfangsefnum.
  • Heiti eininga: Hafðu samræmi í titlum eininga og hafðu þá hnitmiðaða skýra þannig að nemdur sjái fljótt það sem leitað er að.
  • Regla í framsetningu: Þegar atriði innan eininga t.d. hafa fyrst yfirlit eða markmið, síðan lesefni eða fyrirlestra, og loks verkefni eða umræðu læra nemendur fljótt hvar ákveðin atriði eru alltaf staðsett.
  • Fyrirsagnir innan eininga: Það getur auðveldað nemendum að skima námskeiðsvefinn ef sömu fyrirsagnir eru endurteknar innan eininga. 
  • Efnismiklar einingar: Ef eining verður löng og efnismikil getur verið betra að setja hluta efnisins á síðu/síður. Til dæmis má auðvelda yfirsýn og draga úr skrolli með því að setja tengla í lesefni vikunnar á eina síðu.
eining vika (e. module)
Á myndinni hefur efni einingar verið skipulagt út frá fyrirsögnum. Gott er að halda sama fyrirkomulagi í öllum einingum.

Gagnlegir eiginleikar

  • Notandinn getur fellt saman allar einingarnar, opnað eina og eina eða allar í einu.
  • Kennarinn getur breytt röð eininganna t.d. dregið þá einingu sem verið er að fara yfir, s.s. núverandi viku, efst í röðina.
  • Hægt er að flytja innihald á milli eininga.
  • Með því að setja forkröfur og kröfur, er hægt að stýra leið nemanda í gegnum námskeið, s.s. krefjast þess að nemandi ljúki tilteknu efni til að fá aðgang að efni næstu einingar. Sjá nánar um tileinkunarslóðir (e. mastery paths).