Canvas Studio
Canvas Studio
Bæði nemendur og kennarar hafa aðgang að Canvas Studio og það virkar sem hluti af Canvas. Einfalt er að deila myndskeiði eða hljóðupptöku með nemendum á námskeiðsvef og fyrir nemendur að skila myndskeiði í verkefni. Myndskeið sem gert er sýnilegt og spilanlegt á námskeiðsvefnum er í raun áfram staðsett í Studio (á vefþjóni Studio) sem þýðir að það tekur ekkert frá takmörkuðu plássi námskeiðsvefs, s.s. frá skráarsafni (það sama á við um Panopto).
ATH! Studio hentar fyrir stuttar upptökur ca. 15-20 mín. Mælt er með að nota Panopto fyrir myndskeið lengri en 30 mínútur.
Hlekkur á Studio er í Canvas valmyndinni í bláa borðanum.

Dæmi um það sem hægt er að gera
- Kennari getur tekið upp skilaboð til nemenda svo sem velkomin skilaboð eða kynningu á námskeiði.
- Talglærur – Taka upp tal inn á glærur.
- Taka upp stuttar leiðbeiningar fyrir nemendur, t.d. sýna hvernig tiltekið forrit eða aðgerð virkar.
- Safna myndskeiðum frá Youtube í Studio library.
- Setja spurningu/spurningar inn á tiltekna staði í myndskeiði, t.d. sem kveikju fyrir umræðu. Einnig er hægt að setja spurningar inn á myndskeið frá Youtube.
Meira um möguleika Studio
- My Library
Í Studio á hver notandi geymslu „My Library“ fyrir myndskeiðin sín. Þar er einnig er hægt að safna myndskeiðum frá Youtube. - Taka upp myndskeið
Með Studio er hægt að taka upp það sem gerist á tölvuskjánum, notandann sjálfan í mynd eða hvoru tveggja í senn. - Vinnsla myndskeiðs
Studio býður upp á einfalda vinnslu á myndskeiði t.d. að klippa, texta, lesa inn á, hækka/lækka hljóð og setja inn á myndskeiðið skýringar eða örvar. - Nemendur skila myndskeiði
Nemendur hafa einnig aðgang að Studio. Þeir geta m.a. tekið upp og skilað myndskeiði eða hljóðupptöku í verkefnaskilum. Kennari notar SpeedGrader til að gefa endurgjöf fyrir myndskeið rétt eins og fyrir önnur verkefni. Þar er m.a. hægt að setja athugasemdir inn í myndskeið, á tiltekna hluta tímalínunnar, nota matskvarða og/eða einkunn og almenna endurgjöf. - Umræða með myndskeiði
Umræðuvettvangur fylgir hverju myndskeiði sem deilt er úr Studio (einnig Youtube myndskeiðum). Þar geta nemendur og kennarar átt samskipti um efni myndskeiðs. Innlegg í umræðu tengjast inn á tímalínu myndskeiðs. Þau koma bæði fram í myndskeiðinu sjálfu þegar það er spilað og í umræðunni fyrir neðan. Mögulegt er að sleppa því að láta umræðu fylgja myndskeiði. - Spurningar í myndskeiði
Kennari getur sett spurningar inn á tiltekna staði í tímalínu myndskeiðs. Þegar myndskeiðið er spilað stoppar það við spurningarnar. Þegar myndskeið með spurningum er tengt inn í uppsetningu verkefnis er hægt að gefa því vægi af lokaeinkunn og einkunnir nemenda fyrir svörin sendast í einkunnabók námskeiðs. - Greining á notkun
Kennari getur fylgst með áhorfi nemenda, á hvaða myndskeið nemendur horfa, hve lengi og hvar í myndskeiði áhorfi er hætt. Bæði er hægt að skoða heildartíma áhorfs og/eða þrengja greininguna niður í áhorf tiltekins nemanda. Greiningin gefur kennara upplýsingar sem nýtast t.d. við þróun námsefnisins, til að gera það markvissara og dýpra. - Canvas ritilinn
Studio er aðgengilegt í Canvas ritlinum undir verkfæri > smáforrit hefur notandinn aðgang að myndskeiðunum sínum í Studio. Nemendur og kennarar geta því sett inn myndskeið þegar unnið er í ritlinum, svo sem inn á síðu í námskeiði, í umræðu, tilkynningu eða í lýsingu verkefnis.
