Studio - Myndbandi deilt með öðrum
Í Studio er einfalt að deila vídeói með öðrum Canvas notanda t.d. öðrum kennara.
- Byrjaðu á að opna vídeóið í Studio.
- Farðu því næst í þrípunktinn í efra hægra horni og veldu Share.

- Veldu People og finndu þann sem þú vilt deila með. Hægt er að leita eftir nafni eða netfangi.
- Hægt er að velja um Can view eða Can edit, nánari útskýringar eru við hvorn kost.
- Smelltu á Add.
Vídeóið birtist í Studio hjá viðkomandi notanda undir „Shared Library“ og hann getur birt það í eigin námskeiðum.

