Tvö upptökutól eru í Studio
Studio Capture
Hægt er að velja um að taka upp það sem gerist á skjánum (e. screen capture) eða nota vefmyndavél. Einnig er hægt að taka eingöngu upp hljóð.
Screencast-o-Matic
Í Screencast-o-Matic er hægt að taka upp skjáinn, vefmyndavél eða hvoru tveggja í einu. Ef báðir kostir eru valdir sést kennarinn í einu horni skjásins. Hægt er að færa til myndina af kennaranum t.d. ef hún fer yfir mikilvæg atriði sem verið er að sýna.
Með því að skipta á milli ólíkra kosta á meðan upptöku stendur, er hægt að hafa sjálfan sig í mynd, skipta yfir í að taka upp skjáinn með sjálfan sig í einu horni eða taka eingöngu upp skjáinn án kennaramyndarinnar.
Mögulegt er taka upp hljóð tölvunnar sem hentar ef spila á eitthvað í tölvunni sem þarf að heyrast í upptökunni.