Heim > Kennarar > Upptökur og fjarfundir > Canvas Studio > Studio – Spurningar settar í upptöku

Studio - Spurningar settar í upptöku

Mögulegt er að setja spurningar inn á tímalínu upptöku eða myndskeiðs. Þegar upptakan er spiluð stoppar hún við spurningu, nemandi svarar heldur síðan áfram að horfa. Upptökum sem innihalda spurningar er hægt að deila rétt eins og öðrum, t.d. í gegnum Canvas ritilinn.

Ef einkunn fyrir svör nemenda á að fara í einkunnabók og/eða jafnvel reiknast sem hluti lokaeinkunnar, þarf að tengja myndskeiðið við verkefni. Þetta er gert í uppsetningu verkefnisins, við Tegund skila er valið Ytra tæki, Canvas Studio og myndskeiðið síðan valið.

Nánar um spurningar í upptökum