Heim > Kennarar > Upptökur og fjarfundir > Teams fundir í Canvas

Teams fjarfundur settur upp í Canvas

Teams fundur settur upp á síðu í námskeiði

Tæknilega er hægt að setja upp fund alls staðar þar sem Canvas ritillinn birtist t.d. inn í tilkynningu, í dagatalinu eða á síðu. Til að styðja við skipulag á námskeiðsvef er gott að setja fundinn upp á síðu og merkja við að síðan birtist í námskeiðsdagatalinu.

Þegar ritillinn hefur verið opnaður er farið í verkfæri > smáforrit og Teams (ef Teams sést ekki velja: Sjá allt). Eftir að Teams-fundur hefur einu sinni verið settur upp bætist Teams-hnappur í verkfærastiku ritilsins. 

Teams hnappurinn í ritlinum

Hægt er að merkja við að síðan komi fram í námskeiðsdagatali og hana er hægt að nefna eftir efni fundarins svo sem „Fundur um hópverkefni 13. mars“.

Sjá nánar leiðbeiningar um að búa til síðu.

Sumir kjósa að hafa einn tengil fyrir alla fundi námskeiðs og hafa tengilinn t.d. efst á heimasíðu námskeiðs. Þá þarf að athuga að setja hvern og einn fund í námskeiðsdagatalið.

Nemendur sem eru meðlimir í hóp geta einnig sett upp fjarfund í Teams með sama hætti í heimasvæði hóps.

Teams er sá hugbúnaður sem Upplýsingatæknisvið mælir með fyrir fjarfundi. Aðstæður geta þó verið þannig að Zoom henti betur. Sjá leiðbeiningar um Zoom.

Kostir þess að setja Teams fjarfund upp á síðu

  • Síðuna með fjarfundinum er einfalt að birta sjálfvirkt í verkalista nemenda og í námskeiðsdagatali.
  • Með því að setja fundarsíðuna s.s. inn í viðeigandi viku (einingu) styður hún við heildarskipulag námskeiðsvefs.
  • Fyrir utan tengilinn á fundinn er hægt að láta koma fram á síðunni upplýsingar um efni fundarins eða fundardagskrá.
  • Hægt er að nota sömu síðu undir upptöku af fundinum sé hann tekinn upp.
  • Síðuna er einfalt að birta hvar sem er í námskeiðsinu s.s. í tilkynningu til nemenda eða í kennsluáætlun.
  • Hægt er að nota sömu síðuna (og sama fundartengilinn) fyrir alla fjarfundi námskeiðs. Í því tilviki hentar að stilla henni t.d. efst á námskeiðsvefinn.
  • Ef kennari kýs að hafa síðuna fyrir fundinn í vikum námskeiðsins (einingum) þá er einfalt að draga síðuna í viðeigandi viku eða afrita síðuna nokkrum sinnum og setja inn í viðkomandi vikur.