Teams fundur tekinn upp

Kennari getur tekið Teams-fund upp og gert upptökuna aðgengilega nemendum eftir fundinn. Upptakan nær yfir hljóð, mynd og það sem er deilt á skjánum, en Microsoft bendir á að tiltekið efni, svo sem whiteboard, annotations, shared notes og sumt efni úr forritum, komi ekki endilega með í upptöku.

Áður en fundur er tekinn upp

Upplýsingar um upptökur fjarfunda ættu að koma fram í kennsluáætlun. Kennari ætti einnig að láta nemendur vita í upphafi fundar að fundurinn verði tekinn upp og til hvers upptakan verði notuð.

Þegar upptaka hefst birtir Teams sjálfvirka tilkynningu til þátttakenda um að upptaka sé hafin.

Gott er að hafa í huga:

  1. Taktu aðeins upp fundi þegar upptakan hefur skýran tilgang í kennslu.
  2. Segðu nemendum hvar upptakan verður birt og hverjir fá aðgang að henni.
  3. Forðastu að birta upptökur opið utan námskeiðs nema það sé sérstaklega nauðsynlegt og heimilt.
  4. Ef viðkvæm eða persónuleg umræða fer fram á fundi getur verið betra að sleppa upptöku eða stöðva hana tímabundið.

Upptaka hafin og stöðvuð

  1. Opnaðu Teams-fundinn.
  2. Smelltu á meira í fundarstikunni.
  3. Veldu taka upp og umrita og hefja upptöku.
  4. Til að stöðva upptöku skaltu fara aftur í meira > taka upp og umrita og velja stöðva upptöku.

Hvar finn ég upptökuna eftir fundinn?

Hvar upptakan vistast fer eftir því hvar fundurinn var settur upp.

Í flestum tilfellum vistast upptaka af Teams-fundi sem er settur upp í Canvas í OneDrive hjá skipuleggjanda fundarins, í möppunni recordings.

upptaka frá fundi í Teams í recordings möppu

Upptakan á líka að birtast í fundarspjallinu í Teams og/eða undir Shared í fundarspjallinu eða fundarupplýsingum. Microsoft flokkar þetta sem non-channel meeting, þ.e. fund sem er ekki haldinn inni í sérstakri Teams-rás.

Ef fundurinn var stofnaður inni í sérstakri Teams-rás vistast upptakan ekki í OneDrive hjá kennara heldur á SharePoint-svæði rásarinnar. Þá er hún aðgengileg í rásinni undir files og í möppunni recordings.

Hverjir hafa aðgang að upptökunni?

Aðgangur fer eftir gerð fundar og stillingum.

Þegar fundur er settur upp í Canvas fá þátttakendur sem mættu á fundinn yfirleitt sjálfkrafa aðgang að upptökunni. Til að tryggja að allir nemendur hafi aðgang er þó mælt með því að gera upptökuna aðgengilega á námskeiðsvefnum í gegnum Panopto eða Studio. Þannig geta nemendur fundið upptökuna á sama stað og annað efni námskeiðsins.

Upptöku deilt með nemendum

Ef Panopto er notað í námskeiði liggur beinast við að hala niður upptöku fundarins og hlaða upp í Panopto á námskeiðsvefnum, þá er upptakan aðgengileg nemendum á sama stað og aðrar upptökur námskeiðs. Eftir það er einfalt að birta upptökuna einnig t.d. á síðu í námskeiði eða inn í einingu/námsþátt. 

Ef Canvas Studio er notað í námskeiðinu er hægt að fara sömu leið að setja upptökuna í Studio og deila þaðan í námskeið.