Heim > Home > Teachers > Recordings and Online Meetings > Teams Meetings in Canvas

Setting Up a Teams Meeting in Canvas

Að setja Teams fundinn á síðu í námskeiði

Í Canvas ritlinum er hnappur (undir rafmagnsklónni) til að setja upp fund í Teams. Það gerir einfalt að setja Teams fund upp á síðu í námskeiði. Hægt er að merkja við að fundarsíðan komi fram í námskeiðsdagatali og hana er hægt að nefna eftir efni fundarins svo sem „Fundur um hópverkefni 13. mars“.

Sumir kjósa að hafa einn tengil fyrir alla fundi námskeiðs og stilla t.d. efst á heimasíðu námskeiðs. Þá þarf að muna að setja fundina sérstaklega í námskeiðsdagatalið.

Nemendur sem eru meðlimir í hóp geta einnig sett upp fjarfund í Teams með sama hætti í heimasvæði hóps.

Teams er sá hugbúnaður sem Upplýsingatæknisvið mælir með fyrir fjarfundi. Aðstæður geta þó verið þannig að Zoom henti betur, t.d. fyrir stundakennara sem ekki hafa aðgang að kerfum Háskólans. Sjá leiðbeiningar um Zoom.

Kostir þess að setja Teams fjarfund upp á síðu

  • Síðuna með fjarfundinum er einfalt að birta sjálfvirkt í verkalista nemenda og í námskeiðsdagatali.
  • Með því að setja fundarsíðuna s.s. inn í viðeigandi viku (einingu) styður hún við heildarskipulag námskeiðsvefs.
  • Fyrir utan tengilinn á fundinn er hægt að láta koma fram á síðunni upplýsingar um efni fundarins eða fundardagskrá.
  • Hægt er að nota sömu síðu undir upptöku af fundinum sé hann tekinn upp.
  • Síðuna er einfalt að birta hvar sem er í námskeiðsinu s.s. í tilkynningu til nemenda eða í kennsluáætlun.
  • Hægt er að nota sömu síðuna (og sama fundartengilinn) fyrir alla fjarfundi námskeiðs. Í því tilviki hentar að stilla henni t.d. efst á námskeiðsvefinn.
  • Ef kennari kýs að hafa síðuna fyrir fundinn í vikum námskeiðsins (einingum) þá er einfalt að draga síðuna í viðeigandi viku eða afrita síðuna nokkrum sinnum og setja inn í viðkomandi vikur.