00:06: How do I create a new page in a canvas course? 00:09: Select Pages in your course navigation. 00:12: If a front page is set in your course, it will display. Select "View All Pages" button to access the Pages Index Page in this case. 00:21: Select the Add Page option on the Pages Index Page. 00:25: Enter the desired title for the page. 00:28: Compose your page content in the RCE, or Rich Content Editor. 00:33: Set the desired options for your page. You can set which user roles are allowed to edit the page, add it to the student to-do list, delay publishing, and allow its use in Mastery Paths. 00:44: Save the changes made to the page. To keep the page unpublished to allow further edits, select Save. 00:51: If you are ready to publish your page, select the "Save and Publish" option. 00:55: If you need to make additional changes to the page, select the Edit option. 01:00: This guide covered how to create a new page in a course.
Til hvers eru síður?
Síður eru fyrir efni sem kennari býr til. Þær eru notaðar til að miðla efni s.s. texta, myndum, hljóð-/vídeóupptökum og fjarfundum. Með síðum er hægt að efla skipulag á námskeiðsvef og styðja við námsflæði.
Síður má t.d. nota til að setja upp vikuyfirlit, samantekt yfir viðfangsefni námshluta eða viku og til að deila upplýsingum um lesefni t.d. með tenglum í skrár sem á að lesa.
Lykilatriði er að kunna vel á Canvas ritilinn þegar unnið er í síðum.
Í Canvas-ritlinum geta kennarar á einfaldan hátt tengt í annað efni námskeiðsins, svo sem verkefni, próf, skrár, aðrar síður og kennsluáætlun. Einnig er hægt að taka upp stutt mynd- eða hljóðskilaboð beint inn í ritlinum.
Stillingar síðu
Fyrir neðan ritilinn eru stillingar sem gera kleift að bæta síðu við námskeiðsdagatalið og verkefnalista nemenda. Einnig er hægt að leyfa nemendum að breyta síðu þegar það á við.
Hvers vegna að nota síðu í stað skrár
Síður eru oft betri kostur en skrár. Þær er fljótlegra að uppfæra þar sem unnið er beint í Canvas og þær aðlaga sig að mismunandi skjástærðum notenda. Skrá þarf hins vegar að opna í viðeigandi forriti til að breyta og hlaða aftur upp í Canvas.
Bakkað í fyrri útgáfu síðu
Það getur komið sér vel að geta endurheimt fyrri útgáfu af síðu, t.d. ef efni var óvart eytt af síðunni. Svona er farið að:
- Opnaðu síðuna (ekki fara í breyta).
- Smelltu á þrípunktinn í efra hægra horni og veldu Skoða sögu síðu. Útgáfur síðunnar koma upp, sú nýjasta fyrst.

- Smelltu á fyrri útgáfu til að skoða hvernig síðan leit út. Þegar þú finnur þá útgáfu af síðunni sem þú ert sátt/ur við, skaltu smella á Endurheimta þessa endurskoðun.
Til að hætta við er smellt á krossinn í efra hægra horni.


