Heim > Kennarar > Umsýsla námskeiðs > Að gefa skoðunaraðgang

Að gefa skoðunaraðgang

Skoðunaraðgangur í námskeiði veitir notanda heimild til að skoða birt efni námskeiðs, umræður og tilkynningar en notandinn getur ekki tekið þátt í námskeiðinu líkt og nemandi, t.d. ekki svarað innleggjum í umræður eða skilað verkefni. Þessi aðgangur hefur oft verið kallaður „fluga á vegg“.

Skoðunaraðgangur gefinn

Skoðunaraðgangur að námskeiðsvef í Canvas er gefinn í Uglu. Svona er farið að:

  1. Opnaðu Uglu (ugla.hi.is).
  2. Farðu í verkfæri undir valmynd (þrípunkt) við námskeiðið, á forsíðu Uglu.

    Ugla námskeið verkfæri

  3. Smelltu á allar aðgerðir hægra megin undir aðgerðum kennara.

    allar aðgerðir

  4. Smelltu á bæta við „skoðanda“ á námskeiðið, í reitnum fyrir aðgerðir vegna Canvas.

    bæta við skoðanda á námskeið

  5. Finndu notandann annað hvort með því að slá inn notandanafn (án @) eða kennitölu.

    leita eftir notandanafni   

  6. Smelltu á vista.

Allt að ein klukkustund getur liðið þar til notandinn fær skoðunaraðgang í Canvas.

Sannreynt hvort skoðandi hefur fengið aðgang

Opnaðu námskeiðið í Canvas. Undir fólk í valmynd námskeiðs er hægt að fylgjast með hvort notandi hefur fengið skoðunaraðgang. Hér getuðu t.d. slegið nafni skoðandans upp í leitinni eða athugað listann undir öll hlutverk. Þar kemur fram tala í sviga aftan við hlutverkið skoðandi. Veldu hlutverkið skoðandi og nafn viðkomandi kemur fram ef og þegar hann hefur fengið aðgang.
leita að fólki - öll hlutverk

Aftan við nafn skoðanda, undir hlutverki kemur fram „fylgist með: enginn“. Þetta er eðlilegt og merkir að skoðandinn sé ekki tengdur við neinn tiltekinn nemanda heldur hafi almenna skoðunarheimild í námskeiði.

fylgist með enginn 

Í Canvas er mögulegt að tengja tiltekinn nemanda við skoðanda (e. observer). Í því tilviki getur skoðandi t.d. fylgst með einkunnum nemandans. Möguleikinn á við þegar um unga nemendur er að ræða og foreldrum er veittur skoðunaraðgangur. Sá möguleiki er ekki notaður við HÍ.