Heim > Kennarar > Einkunnir og endurgjöf > Matskvarðar > Einkunn og endurgjöf með matskvarða

Einkunn og endurgjöf með matskvarða

Á mínútu 3:55 í myndbandinu er farið í einkunnagjöf með matskvarða í SpeedGrader.

Til að einkunn reiknist sjálfvirkt út frá matskvarðanum

Ef einkunn nemanda á að reiknast sjálfvirkt út frá því sem kennari velur í matskvarðanum þarf að merkja við valkostinn nota þennan matskvarða fyrir einkunnagjöf verkefnis. Valkosturinn er aðgengilegur eftir að matskvarði er kominn inn í verkefnið. Verkefnið er opnað og skrollað niður á verkefnissíðunni (ekki farið í breyta) og farið í pennamerki matskvarðans.

pennamerki matskvarða

Merkt er við nota þennan matskvarða fyrir einkunnagjöf verkefnis og vistað.